Íslandsmet í aflabrögðum

Arnar Laxdal Jóhannsson skipstjóri fagnar þeim gula innilega.
Arnar Laxdal Jóhannsson skipstjóri fagnar þeim gula innilega. Alfons Finnsson

Skipverjar á Tryggva Eðvarðs SH voru kampakátir þegar þeir komu að landi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi með 11 tonn af rígvænum hrygningarþorski.

„Þessi mánuður hjá okkur er Íslandsmet smábátamanna. Núna í janúar höfum við komið með að landi 230 tonn af þorski og aflaverðmætið er 74 milljónir króna. Mér skilst að fyrra met í afla sé 218 tonn og verðmætin hafi mest hingað til orðið 42,7 milljónir króna,“ sagði Arnar Laxdal Jóhannsson skipstjóri í samtali við Morgunblaðið þegar hann kom að landi á Rifi í gærkvöldi eftir tæplega sólarhrings útiveru.

Sjá nánar um fiskiríið undan Jökli í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert