17% af strandveiðiafla til vinnslu í heimahöfn
Aflinn sem strandveiðibátarnir veiddu síðastliðið sumar og var landað á Ísafirði, var allur seldur beint til aðila utan löndunarhafnar. Sömu sögu má segja um Bíldudal, Þingeyri, Norðurfjörð, Hólmavík og Patreksfjörð.
Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi.
91,7 tonnum af strandveiðiafla var landað á Ísafirði, þar af voru 14 tonn seld til vinnslu beint af skipi, rúm 76 tonn voru seld á fiskmarkaði til vinnslu og rúmt 1,5 tonn af aflanum var keyptur af markaði og fluttur út.
Strandveiðibátarnir frá Bolungarvík lönduðu samtals 220 tonnum í Bolungarvík. 40% af þeim afla var seldur á markaði eða til vinnslu í sama bæjarfélagi eða um 89 tonn. Rúm 130 tonn voru seld til aðila utan löndunarhafnar og var mest selt á markaði til vinnslu utan Bolungarvíkur eða um 120 tonn. 6,2 tonn voru seld beint af skipi, 3,6 tonn voru seld á markaði og flutt út.
Á Flateyri var 99,8% af aflanum keyptur af aðila í löndunarhöfn, aðeins 182 kg voru seld aðila utan löndunarhafnar. Alls var landað 79,5 tonnum á Flateyri og voru þau öll seld til vinnslu beint af skipi. Á Suðureyri var 90,6% af aflanum seldur aðila í heimahöfn. Á Vestfjörðum fór 29% aflans til vinnslu í heimahöfn bátanna.
Af þeim 4100 tonnum sem strandveiðibátarnir á Íslandi veiddu við Íslandsstrendur síðastliðið sumar fór aðeins 17% til vinnslu í heimhöfn bátanna. Afli af strandveiðibátum var landað í 53 höfnum á landinu og í helmingi þeirra eða 26 höfnum fór ekkert af aflanum til vinnslu þar á staðnum.
Töluleg gögn eru unnin af Fiskistofu og stuðst er við upplýsingar úr vigtar- og ráðstöfunarskýrslum. Þar sem Fiskistofa fylgir ekki aflanum lengur eftir en að fyrsta kaupanda er ekki hægt að fullyrða að fiskvinnsla, sem kaupir afla og er staðsett í sömu höfn og löndun strandveiðibáts á sér stað, hafi sannanlega unnið hann eða ekki.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 4. maí 2009, Innlent Veiddu 460 tonn í lögsögunni í mars
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Innlent Fiskurinn dreginn landshorna á milli
- Þriðjudagur, 1. mars 2011, Innlent Fiskverð hækkar
- Miðvikudagur, 6. október 2010, Innlent Verð á þorski og ýsu lækkað
- Þriðjudagur, 20. júlí 2010, Innlent Hefur landað 4.340 tonnum á sex vikum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































