Norðmenn breyta um Icesave-stefnu
Talsmaður Sósíalíska vinstriflokksins í norska stórþinginu lét í kvöld hafa eftir sér, að norska ríkisstjórnin hefði breytt um stefnu varðandi lánafyrirgreiðslu til Íslendinga. Norðmenn ætli nú að beita sér fyrir því innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að önnur endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands fari þar fram þótt Icesave-deilan við Breta og Hollendinga sé enn óleyst.
Norski fréttavefurinn ABC hefur þetta eftir Lars Egeland, talsmanni Sósíalíska vinstriflokksins, eftir þingflokksfund flokksins síðdegis. Sagði Egeland, að íslenskum stjórnvöldum hefði verið tilkynnt um þetta.
ABC segir, að til þessa hafa Norðmenn haldið fast við þá stefnu, að Íslendingar verði að leiða deilur sínar við Breta og Hollendinga til lykta áður en hægt verði að afgreiða frekari lánveitingar tengdar efnahagsáætlun Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Lán frá Norðurlöndunum tengjast áætlun AGS.
Eftir að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synjaði Icesave-lögunum staðfestingar í byrjun janúar hafi staðan breyst. Nú eigi að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um lögin 6. mars. Þetta hafi leitt til þess, að íslensku stjórnarflokkarnir hafi farið fram á að fá lán, sem ekki væru skilyrt Icesave-málinu.
Egeland segir við ABC, að það sé afstaða Sósíalíska vinstriflokksins, að íslensk stjórnvöld hafi uppfyllt kröfur áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og því eigi afgreiðsla Icesave-málsins ekki að standa í vegi fyrir henni. Þau boð hafi borist inn á þingflokksfundinn í dag, að þetta sé nú einnig afstaða norsku ríkisstjórnarinnar.
Egeland segir einnig, að nú sé það afstaða Noregs að beita sér fyrir því að efnahagsáætlun Íslands verði endurskoðuð í annað sinn. Náist það fram eigi að greiða næsta hluta lánanna án nokkurra skilyrða um Icesave. Íslendingar hafi sagt, að þeir vilji standa við sínar skuldbindingar en enn sé hafi ekkert samkomulag öðlast gildi.
Norski Miðflokkurinn, sem á aðild að norsku ríkisstjórninni ásamt Sósíalíska vinstriflokknum og Verkamannaflokknum, hefur frá því á síðasta ári haft þá afstöðu að Noregur eigi að lána Íslandi fé óháð Icesave-málinu. ABC segir, að Framfaraflokkurinn hafi einnig tekið þessa afstöðu og sömuleiðis Kristilegi þjóðarflokkurinn en þessir flokkar eru í stjórnarandstöðu.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Fylgi eykst við "Fair deal". -
Ægir Óskar Hallgrímsson Norðmenn farnir að hugsa skýrar! -
Gunnar Gunnarsson Það er bara svo -
Þórkatla Snæbjörnsdóttir Frændþjóðavinir í raun, innistæður og fl. -
Kristinn Pétursson Norrænt velferðarsamstarf í alvöru? -
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Málin þokast -
Sigurður Hrellir Á faglegum forsendum -
Páll Höskuldsson Hvað hefur breyst hjá þeim Norsku? -
Kristin stjórnmálasamtök Norska vinstri stjórnin snýr við blaðinu í Icesave-AGS-máli! Þrír flokkar ... -
Carl Jóhann Granz Mun ríkisstjórn okkar breyta um stefnu? -
Friðrik Hansen Guðmundsson Norðmenn að hætta sem handrukkarar Breta og Hollendinga? -
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Ríkisstjórnin óskaði fyrst eftir lánum, frá Noregi, óháðum icesave, eftir ... -
Sigurður Haraldsson Velkomnir vinir.
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. febrúar 2010, Innlent Noregur hefur ekki tengt Icesave við lán
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent Hærra lán ekki í boði
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Innlent Nýr tónn hjá Gahr Støre
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Krefjast þess að Íslandslán sé greitt út án skilyrða
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Innlent Ósammála um lán til Íslands
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































