Álftanesi verði skipuð fjárhaldsstjórn

Frá Álftanesi stækka

Frá Álftanesi Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur lagt til við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að Sveitarfélaginu Álftanesi verði skipuð fjárhaldsstjórn sem hafi forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins.

Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, var afhent bréf þessa efnis í dag.

Í bréfinu kemur fram að eftirlitsnefndin hafi gert fulltrúum sveitarstjórnarinnar, forystumönnum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu grein fyrir því að til þessarar ráðstöfunar gæti komið. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra átti  síðdegis í dag fund með bæjarfulltrúum Sveitarfélagsins Álftaness og gerði þeim grein fyrir tillögu eftirlitsnefndarinnar. Kom fram þar að hann myndi ákveða næstu skref í málinu mjög fljótlega.

Í bréfi eftirlitsnefndarinnar kemur meðal annars fram:

  • Nefndin telur mikilvægt að leitað verði varanlegra lausna á fjárhagsvanda sveitarfélagsins og leggur nefndin til með vísan til 76. greinar sveitarstjórnarlaga að sveitarfélaginu verði skipuð fjárhaldsstjórn.
  • Fjárhaldsstjórnin hafi forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins og leiti allra tiltækra leiða til lausnar á vandanum.
  • Lagt er til að gerður verði samningur um samskipti og verkaskiptingu fjárhaldsstjórnar og sveitarstjórnar um fjárhaldslegar aðgerðir á skipunartíma fjárhaldsstjórnarinnar.
  • Nefndin bendir sérstaklega á að starfsmenn sveitarfélagsins og sveitarstjórnin hafa unnið gott verk við greiningu vandans og áætlanagerð sem ætla má að nýtist í þessu verkefni.

 
Fjárhagur Sveitarfélagsins Álftaness hefur verið til athugunar hjá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga   um skeið. Í samræmi við samkomulag nefndarinnar og bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Álftaness 17. desember 2009 skilaði bæjarstjórn 27. janúar eftirlitsnefndinni skýrslu um aðgerðir í fjármálum sveitarfélagsins.

Í skýrslunni er gerð ítarleg grein fyrir margvíslegum aðgerðum til að auka tekjur og skera niður útgjöld árin 2010 til 2013. Nemur ávinningur þessara aðgerða 228 milljónum króna á þessu ári og 291 milljón króna árið 2011. Heildartekjur árið 2010 eru áætlaðar 1.312 milljónir króna og þrátt fyrir verulegan niðurskurð rekstrargjalda telur eftirsnefndin að rekstur bæjarfélagsins sé í járnum fyrir fjármagnsliði og afskriftir.

Skuldir sveitarfélagsins í árslok 2009 eru áætlaður um 3,1 milljarður króna. Skuldbindingar vegna rekstrarleigusamninga og annarra langtímasamninga eru áætlaðar 4,1 milljaður króna. Skuldir og skuldbindingar í árslok 2009 eru því áætlaðar rúmlega 7,2 milljarðar króna samkvæmt skýrslunni sem er svipuð fjárhæð og fram kom í skýrslu sem eftirlitsnefndin birti bæjarstjórn í desember 2009.

Í skýrslu bæjarstjórnar kemur fram að þrátt fyrir tillögur um hagræðingu í rekstri, skuldbreytingu lána og niðurfellingu skuldbindinga í nokkrum mæli getur sveitarfélagið ekki skilað hallalausum rekstri eða staðið við skuldbindingar sínar. Ljóst er því að grípa þurfi til margvíslegra ráðstafana til að leysa fjárhagsvanda sveitarfélagsins. Telur eftirlitsnefndin að sveitarfélagið þoli vart skuldir og skuldbindingar umfram 2-2,5 milljarða króna. Fram hefur komið að sveitarfélagið er komið í greiðsluþrot og hefur þegar fengið fyrirframgreiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að greiða brýnustu útgjöld og skammt er í næstu bráðagreiðslur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Blíðviðri á Egilsstöðum

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða á Hallormsstað

14:24 Milt og hlýtt veður er um mestallt land í dag. Rigningu er spáð í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun.  Meira »
Umferð á Vesturlandsvegi

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside árg. 2003, 12" fellihýsi til sölu. heitt og kalt vatn, sólarsel...
ÖFLUGIR FJARSTÝRÐIR RAFMAGNS
Öflugir fjarstýrðir bensín- og rafmagnsbílar í ...
Óska eftir Dell 2950 þjóni ódýrt
Óska eftir Dell 2950 netþjóni eða sambærilegu. vinsamlegast sendi upplýsingar á ...
Honda Accord Sport Special Edition 11/07
Ek. 44 þ.km. 2,0L vél, sjálfsk., 17" álfelgur, sumar- og vetrard, hiti í sætum, ...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...