Íslenskir hjúkrunarfræðingar til Haítí
Hjúkrunarfræðingarnir Lilja Steingrímsdóttir og Maríanna Csillag eru á leið til Haítí þar sem þær munu starfa á tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins. Tjaldsjúkrahúsið sinnir 700 sjúklingum á dag, og er við íþróttaleikvang í Carrefour, einu fátækasta hverfi höfuðborgarinnar Port-au-Prince. Þar hafa tugþúsundir manna leitað skjóls við mjög slæmar aðstæður, að sögn Rauða kross Íslands.
Lilja heldur til Haítí næsta sunnudag. Hún starfar sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans. Lilja hefur tvisvar áður starfað fyrir Rauða krossinn, á Taílandi og í Pakistan.
Maríanna hefur starfað við fjölmargar neyðaraðgerðir Rauða kross hreyfingarinnar í Afríku, Asíu og Evrópu. Maríanna fer til Haítí 15. febrúar.
Tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands fóru til starfa á Haítí nokkrum dögum eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Hlín Baldvinsdóttir starfar með neyðarsveit Alþjóða Rauða krossins sem sér um skipulagningu neyðaraðgerða fyrstu vikurnar. Friðbjörn Sigurðsson læknir starfar á sjúkrahúsi þýska Rauða krossins. Þau munu að öllum líkindum halda heim seinni partinn í febrúar.
RKÍ segir, að neyðaraðgerðir Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí verði stöðugt umfangsmeiri. Vatnshreinsistöðvar Rauða krossins framleiði um 1 milljón lítra af hreinu vatni á dag, og vatnsdreifikerfi hafi verið sett upp í 88 búðum þar sem fólk hefst við. Þúsundir manna fái læknisaðstoð á hverjum degi, og heilsugæslusveitir Rauða krossins geta sinnt um 340.000 manns. Þúsundir manna fái teppi, moskítónet, hreinlætisvörur og eldhúsáhöld í hverri viku og eins hafi Rauði krossinn tekið þátt í matvæladreifingu.
Rauði kross Íslands tekur enn við framlögum í söfnunarsímanum 904 1500, en þá gjaldfærast 1500 krónur á næsta símreikning, og á reikning 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649. Að gefnu tilefni vill Rauði krossinn árétta að félagið er einungis að safna fé fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí með þessum hætti .
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Hjálparstarfsmenn til Haiti
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Hjúkrunarfræðingur til Haítí
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Fimm á vegum Rauða krossins á Haítí
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Innlent Þrír til viðbótar til Haítí
- Þriðjudagur, 9. febrúar 2010, Innlent Til hjálparstarfa á Haiti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































