Fréttaskýring: Samfylkingin lítur til ESB en VG til Noregs

stækka

DYLAN MARTINEZ

Morgunblaðið eftir Agnesi Bragadóttur

Fulltrúum stjórnarandstöðunnar er nóg boðið, hvað varðar hringlandahátt ríkisstjórnarinnar í Icesave-málum. Ráðherrar hafi ítrekað boðað formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, ásamt fulltrúa Hreyfingarinnar, á fundi þar sem reyna eigi að ná þverpólitískri samstöðu í Icesave-málinu en hverjum fundinum á fætur öðrum ljúki án þess að ríkisstjórnin sýni nokkurn lit í því að vilja taka upp samninginn við Breta og Hollendinga og semja upp á nýtt.

Hið eina sem komið hafi nýtt frá ríkisstjórninni séu hugmyndir um nýja lánsfjármögnun vegna Icesave-samninga þar sem samið verði um lægri vexti og hagstæðari kjör og þá við aðra en Hollendinga og Breta.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins talar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra þannig á fundum með stjórnarandstöðunni að hægt sé að semja við Evrópusambandið um að sjóður á vegum ESB láni Íslendingum fyrir öllum höfuðstól Icesave-lánanna, þannig að rúmar 20 þúsund evrur verði greiddar til Hollendinga og Breta fyrir hvern Icesave-reikning á mun hagstæðari kjörum en um samdist við Hollendinga og Breta, þegar lánasamningurinn var gerður.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra virðist samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa litla trú á að slíkir samningar geti náðst við ESB, þrátt fyrir fyrirhugaðan fund Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Brussel í dag með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Fjármálaráðherra mun hafa kynnt sínar hugmyndir á fundum með stjórnarandstöðunni um að hægt væri að ná samningum við Norðmenn um lánveitingar á hagstæðari vöxtum en um samdist í Icesave og hefur gefið sterklega í skyn að innan fárra daga gæti legið fyrir að slíkir samningar við Norðmenn væru mögulegir.

Heimildum ber ekki saman um hversu miklu hagstæðari vexti þeir Össur og Steingrímur eru að ræða en þó hafa tölur á bilinu 2% upp í 3,7% verið nefndar eða umtalsvert lægri vextir en þau 5,7% sem samið var um við Hollendinga og Breta.

Samkvæmt samtölum við þingmenn stjórnarandstöðunnar í gær er margt sem hefur reynt á þolrif stjórnarandstöðunnar frá því hún hóf fundarsetur með fulltrúum ríkisstjórnarinnar um Icesave.

Stjórnarandstaðan hefur enga sannfæringu fyrir því að ríkisstjórnin vilji taka upp samninginn við Breta og Hollendinga, á meðan fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa lagt á það mikla áherslu á undanförnum fundum, að eðlilegt sé að fengnir verði þaulreyndir sérfræðingar á sviði alþjóðlegrar samningagerðar til þess að leiðbeina Íslendingum og það verði gert áður en nýtt samningstilboð verði lagt fyrir Breta og Hollendinga.

Þeir Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson munu hafa orðið fyrir ákveðnu áfalli á fundinum í Haag í síðustu viku með

Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands og Paul Myners, bankamálaráðherra Bretlands, þegar Steingrímur reifað möguleikann á nýrri lánsfjármögnun við Bretann og Hollendinginn og að höfuðstóllinn samkvæmt kröfum Breta og Hollendinga yrði greiddur upp. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar töldu að það hefði verið afar óskynsamlegt af ráðherra að sýna viðmælendum með þessum hætti á spilin sín.

Hollendingar og Bretar hafi tekið þessum boðskap ráðherrans fagnandi, en þeir hafi fram að þessum tímapunkti á fundinum, verið jákvæðir gagnvart nýjum samningaviðræðum.

Enginn skilur leyndina yfir Evrópuförinni

Þótt Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hitti José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, á fundi í Brussel í dag, hvílir mikil leynd yfir þeim fundarhöldum og öðrum sem ráðherrann áformar í þessari Evrópuheimsókn sinni. Forsætisráðherra staðhæfði reyndar á forsíðu Morgunblaðsins í gær, að ekki væri um neinn leynifund að ræða, heldur hefði hann verið ákveðinn í desembermánuði. Menn spyrja því, hvers vegna var fyrst upplýst um fundinn á heimasíðu Evrópusambandsins á mánudag og eftir að fréttin var komin í loftið hér á landi var henni snarlega kippt út af heimasíðunni. Menn spyrja líka, að hvers undirlagi það hafi verið.

Þá er bent á, að það sé einkennilega lítið samræmi á milli þess sem ráðherrann segir sjálf og þess sem aðstoðarmaður hennar, Hrannar B. Arnarsson segir, því Útvarpið hafði eftir honum í fyrradag að fundir forsætisráðherra með embættismönnum Evrópusambandsins ættu að fara leynt.

Í hnotskurn
» Stjórnarandstaðan efast um vilja stjórnarinnar til að taka upp Icesave-samninginn. Stjórnin vilji ekki ræða neitt nema vaxtamálin.
» Fjármálaráðherra vill reyna að fá nýja lánsfjármögnun frá Noregi á lægri vöxtum en eru á Icesave-samningnum.
» Össur og Jóhanna renna hýru auga til ESB og vilja reyna að ná hagstæðum lánasamningum við ESB, til þess að greiða upp höfuðstólinn á Icesave-kröfunum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Blíðviðri á Egilsstöðum

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða á Hallormsstað

14:24 Milt og hlýtt veður er um mestallt land í dag. Rigningu er spáð í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun.  Meira »
Umferð á Vesturlandsvegi

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
Til sölu Palomino Yearling 4103 10 fet árg. 2006
Fortjald, markísa, sólarsella, verð 1.250.000 Upplýsingar í síma 8971942...
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
 
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...