Skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela vodkapelum

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í mánaðar fangelsi fyrir að stela þremur vodkapelum úr vínbúðum í Reykjavík í júní í fyrra.

Alltaf valdi maðurinn sömu tegundina, Smirnoff.  Hann játaði brot sitt. Fram kemur í dómi héraðsdóms, að maðurinn á að baki um 20 ára sakarferil og hefur m.a. verið dæmdur fyrir skalafals, þjófnað og fíkniefnabrot. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert