Stendur við fréttina
„Hvenær höfðuð þið spurnir af því í öllu þessu ferli að Norðmenn væru tilbúnir að lána Íslendingum áður en Icesave-deilan væri leyst?“ spyr Thomas Vermes, blaðamaður hjá ABC Nyheter, sem kveðst standa við frétt sína um stefnubreytingu norsku stjórnarinnar.
„Þeir staðfesta að Noregur hefur ekki gert kröfu um lausn Icesave-málsins en það sem þeim gremst eru þau skrif mín að þetta sé ný afstaða. Þeir halda því fram að síðarnefnda atriðið sé rangt. Það er þvættingur,“ segir Vermes og vísar til talsmanna stjórnarinnar.
Eins og rakið hefur verið ýtarlega á fréttavef Morgunblaðsins birti ABC Nyheter frétt Vermes í gærkvöldi þess efnis að norska stjórnin hefði ákveðið að sammælast um að lán hennar til Íslands yrði aftengt Icesave-málinu.
Stefnubreytingin þótti sæta miklum tíðindum enda hafði Verkamannaflokkurinn, stærsti flokkur stjórnarinnar, ekki viljað taka þessa línu en hinir stjórnarflokkarnir, Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokkurinn, hins vegar viljað ganga lengra í aðstoð til Íslands.
Hafnar túlkun ráðuneytisins
Á vef norska fjármálaráðuneytisins hefur verið birt yfirlýsing þar sem segir að norska stjórnin hafi ekki skilyrt lánafyrirgreiðsluna við lausn Icesave-málsins, túlkun sem Vermes ber brigður á.
Máli sínu til stuðnings vísar hann til fréttar á vef Aftenposten í gær þar sem fram kemur að Norðurlöndin muni ekki veita Íslendingum lán áður en Icesave-deilan er leyst.
Sjálfur hefur Vermes óskað eftir viðtali við fjármálaráðherra Noregs, jafnaðarmanninn Sigbjørn Johnsen, en fengið þau svör að hann þyrfti að senda spurningar skriflega á tölvupósti.
Vermes kveðst aðspurður hafa fylgst náið með umræðunni um Icesave í Noregi og að á öllum þeim tíma hafi legið ljóst fyrir að lausn málsins væri skilyrði frekari lánafyrirgreiðslu til handa Íslandi.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent Hærra lán ekki í boði
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Krefjast þess að Íslandslán sé greitt út án skilyrða
- Laugardagur, 15. ágúst 2009, Innlent Axli ábyrgð á hægritilraun
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Innlent Norðmenn lýsa undrun á hryðjuverkalögum
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Stjórnin gagnrýnd fyrir hörku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































