Aldrei hitt Hollendingana
Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, hefur aldrei hitt seðlabankastjóra Hollands, Nout Wellink, né heldur neina sendinefnd á vegum hollenskra stjórnvalda vegna Icesave. Hins vegar viti hann að þáverandi forstjóri FME, Jónas Fr. Jónsson, og fleiri starfsmenn FME hittu Hollendinga að máli haustið 2008 í Amsterdam.
„Ég hef aldrei hitt þessa menn, hvorki fyrr né síðar og alls ekki vegna Icesave," segir Jón í samtali við mbl.is.
Jón og Jónas voru gestir viðskiptanefndar Alþingis í morgun og vill Jón lítið tjá sig um hvað fram kom á fundinum enda segir hann það ekki sitt hlutverk að greina frá því hvað komi fram á nefndarfundi á vegum Alþingis.
Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, lét hafa eftir sér í dag að fyrrverndi forstjóri og stjórnarformaður FME, Jónas og Jón, ættu að fara utan til að svara fyrir þau ummæli sem Wellnink og fyrrum starfsmaður hollenska seðlabankans hafa haft um íslenska embættismenn.
Jón segir að það sé óvenjulegt að nefndarformaður tjái sig um slíkt án þess að nefna það við viðkomandi einstakling. Hann vill ekki tjá sig frekar um þessi ummæli Lilju.
Wellink sagði fyrir þingnefnd hollenska þingsins í gær, að íslensk stjórnvöld hafi sagt hollenskum stjórnvöldum ósatt um stöðu íslenska bankakerfisins haustið 2008.
Hið sama sagði Arnold Schilder, fyrrum yfirmaður hollenska bankaeftirlitsins fyrir þingnefndinni fyrr í vikunni . Sagði hann að íslenskir kollegar sínir hefðu logið að hollenska seðlabankanum um stöðu Landsbankans árið 2008.
Fram hefur komið áður, að hollenski seðlabankinn var í samskiptum við Fjármálaeftirlitið í ágúst 2008 vegna Landbankans. Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, sagði á blaðamannafundi í október 2008, að hollenski seðlabankinn hefði fram á síðustu stundu fengið upplýsingar frá Íslandi um að allt væri í lagi með Icesave-reikningana. Hann hélt því einnig fram á sama fundi að seðlabankinn hefði fengið rangar upplýsingar um greiðsluþol íslensku bankanna frá Fjármálaeftirlitinu á Íslandi út septembermánuð.
Icesave-reikningar Landsbankans voru opnaðir sem útibú í Hollandi þann 29. maí 2008. Þegar þeim var lokað í október, rúmum fjórum mánuðum síðar, voru viðskiptavinir þeirra orðnir 114.136 talsins. Innstæður á reikningum þeirra voru 1.674 milljónir evra, nærri 300 milljarðar króna á núverandi gengi.Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Davíð er maðurinn -
Einar Guðjónsson Ekki mikil vinna í módelstörfunum -
Helgi Rúnar Jónsson Davíð og þvottavélin 2
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. febrúar 2010, Innlent Segir íslensk stjórnvöld hafa logið
- Föstudagur, 15. janúar 2010, Innlent Segir FME neita að mæta fyrir rannsóknarnefnd
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Innlent Ekkert bendir til að FME hafi logið
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Vill fund í viðskiptanefnd
- Miðvikudagur, 17. júní 2009, Innlent Gátu ekki stöðvað Icesave
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































