Kaupsamningum fjölgar milli ára
mbl.is/Kristinn
Á vef Fasteignaskrár Íslands kemur fram að viðskipti með eignir í fjölbýli námu 2,4 milljörðum í janúar 2010, viðskipti með eignir í sérbýli 900 milljónum og viðskipti með aðrar eignir 1,2 milljörðum króna.
Þegar janúar 2010 er borinn saman við desember 2009 fækkar kaupsamningum um 25,6% og velta minnkar um 54,1%. Í desember 2009 var þinglýst 211 kaupsamningum, velta nam 9,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46,8 milljónir króna.
Í janúar 2009 var þinglýst 116 kaupsamningum, velta nam 3,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,2 milljónir króna.
12 kaupsamningar á Akureyri í janúar
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í janúar 2010 var 12. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 273 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,7 milljónir króna.
Á sama tíma var 16 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 297 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,5 milljónir króna.
Á sama tíma var 1 samningi þinglýst á Akranesi. Þar var samningur um eign í sérbýli upp á 25 milljónir króna.
Á sama tíma var 14 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 516 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,9 milljónir króna.
Heildarveltan 1.232 milljónir króna
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 29. janúar til og með 4. febrúar 2010 var 48. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.232 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,7 milljónir króna.
Fjórar fasteignir seldar á Suðurnesjum
Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 256 milljónir króna og meðalupphæð á samning 64 milljónir króna.
Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 122 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,4 milljónir króna.
Á sama tíma var 4 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 77 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,2 milljónir króna



































