Skora á stjórnvöld að efla Landhelgisgæsluna

Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar.
Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar.

Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa samþykkt áskorun til stjórnvalda um að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt því eftirlits- og öryggishlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum.

Í áskorun frá þessum félögum segir, að nýlegt atvik undirstriki, að niðurskurður á rekstrarfé Landhelgisgæslunnar ógni öryggi sjómanna á hafi úti. Þá hafi Landhelgigæslan orðið að synja beiðni frá íslenskum togara sem óskaði eftir þyrluhjálp vegna veikinda skipverja þar sem skipið var um 70 sjómílur frá landi og aðeins ein þyrluvakt til taks. 

„Þótt þrengingar séu í ríkisrekstri er það dýrkeyptur sparnaður að vega að ákveðnum grunnþáttum á borð við þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar og þar með öryggi sjómanna á hafi úti. Við skorum því á stjórnvöld að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt því eftirlits- og öryggishlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum," segir í áskorun félaganna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert