Áhorfsmet slegið hjá RÚV í seinni vikunni á EM
Útsendingar frá leikjum Íslendinga á EM voru langvinsælasta efni Sjónvarpsins vikuna 25. til 31. janúar. Samkvæmt mælingum Capacent var uppsafnað áhorf mest á úrslitaleikinn um þriðja sætið á milli Íslands og Póllands sl. sunnudag, eða nærri 77%. Þar á eftir kemur leikurinn í undanúrslitunum gegn Frökkum, með 76% áhorf þeirra er horfðu í hið minnsta fimm mínútur samfleytt. Áhorf á úrslitaleik Frakka og Króata var sömuleiðis töluvert, eða um 70%.
Aðeins þrír efnisþættir hjá RÚV, aðrir en frá EM í handbolta, komast á topp-10-listann yfir mesta áhorfið meðal áhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Spaugstofan nær sjöunda sætinu með 51% uppsafnað áhorf, Söngvakeppni Sjónvarpsins með 47% og í tíunda sæti koma veðurfréttirnar. Uppsagnað áhrif er ekki skráð á veðrið en meðaláhorf á þann dagskrárlið mældist tæp 34%.
Mest horft á Danaleikinn
Þó að Íslendingar hafi setið límdir við skjáinn á meðan EM fór fram þessa síðustu viku janúar voru engin met slegin. Vikuna þar áður var uppsafnað áhorf á leik Íslendinga og Dana á EM tæp 82%.
Metið í þessum mælingum Capacent er sennilega úrslitakvöld Júróvisjón í Moskvu sl. vor þegar Jóhanna Guðrún heillaði Evrópubúa upp úr skónum með laginu Is it true. Þá var uppsafnað áhorf hjá RÚV 92%.
Skaupið hefur jafnan laðað landann að skjánum á gamlárskvöld. Síðustu tvö ár hefur það verið á svipuðum slóðum og leikir Íslendinga á EM, eða 78% síðasta gamlárskvöld og 82,2% árið þar áður. Í árdaga mælinga með símakönnun fór áhorf á Skaupið eitt sinn í 95%.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 8. janúar 2011, Innlent 75% áhorf var á Skaupið í fyrra
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Innlent Meira horft á handbolta en Skaupið
- Laugardagur, 10. júlí 2010, Innlent Átta vinsælustu dagskrárliðirnir tengdir HM
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Innlent Áfram Ísland
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Innlent Veðurfréttirnar vinsælastar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































