Fréttaskýring: Krökkum sem ekki eru í skóla líður verr
Um 9% landsmanna eru núna án vinnu, en atvinnuleysi meðal ungs fólks er enn hærra. 18% atvinnulausra eru á aldrinum 16-24 ára.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Stór hluti ungs fólks sem hætt hefur í skóla og er atvinnulaust er með brotna sjálfsmynd og líður illa. Þetta má lesa út úr rannsókn á líðan ungmenna á aldrinum 16-20 ára sem kynnt var í gær.
Atvinnuleysi meðal ungs fólks er mikið vandamál. Samkvæmt nýjustu tölum Vinnumálastofnunar voru samtals 2.754 einstaklingar á aldrinum 16-24 ára atvinnulausir í lok desember. Þetta er um 18% allra atvinnulausra. Yfir 500 í þessum hópi hafa verið án vinnu í eitt ár eða lengur.
Stjórnvöld hafa reynt að bregðast við þessum vanda með vinnumarkaðsúrræðum af ýmsu tagi en markmiðið með þeim er að gera þennan hóp betur hæfan til að taka þátt í atvinnulífinu. Vandamálið er að stór hluti hópsins er með litla menntun og hefur aflað sér lítillar reynslu á vinnumarkaði og stendur því að nokkru leyti höllum fæti í samkeppni við aðra sem eru að líka að leita að vinnu.
Búseta og kyn hefur lítil áhrif á líðan ungs fólks
Þessi mál voru rædd í gær á fundi í Háskólanum í Reykjavík. Þar var kynnt könnun sem var gerð að frumkvæði menntamálaráðuneytisins og með stuðningi forvarnar- og framfarasjóðs Reykjavíkur.Álfgeir Logi Kristjánsson, lektor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, segir að þegar þegar spurt sé um líðan ungmenna skipti búseta eða kyn nánast engu máli. Mesti breytileikinn komi fram þegar skoðað er hvort fólk á þessum aldri er í námi, með vinnu eða er atvinnulaust.
„Það er sama hvað er skoðað. Krakkarnir sem eru atvinnulaus koma verst út. Þau koma verst út í líðan. Þau koma verst út í vímuefnum. Þau eru með lökustu sjálfsmyndina. Finnst flestir hafa brugðist sér. Hafa minnsta og slakasta stuðningsnetið. Þau sjá engan sérstakan tilgang með hlutunum o.s.frv.“
Álfgeir dregur þá ályktun að við þurfum að gera betur við ungt fólk. „Það er ekki fyrir alla að fara í menntaskóla. Kannski vill fólk gera eitthvað annað.“ Álfgeir segir að það sé mikið búið að tala um það á liðnum árum að auka þurfi veg annars konar náms. Þetta hafi hins vegar því miður ekki skilað miklu. Það hafi ekki tekist að auka virðingu fyrir annars konar menntun.
Brottfall úr námi breytist lítið
Brottfall úr skólum hefur lítið breyst á síðustu árum. Að jafnaði skrá um 94% 16 ára nemenda sig í framhaldsnám. Ári seinna er hlutfall sama árgangs sem er í skóla komið niður í 85%. Tveimur árum síðar er hlutfallið komið niður í 69%.Eins og áður segir koma þeir sem eru í námi best út í könnuninni og þeir sem eru atvinnulausir koma verst út. Ungmenni sem eru í vinnu eru þar á milli.
Ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus reykja frekar en þau sem eru í námi. Þau neyta fremur áfengis og ólöglegra vímuefna en þau ungmenni sem eru í námi.
2754einstaklingar á aldrinum 16-24 ára voru án vinnu í lok desember sl. 515
höfðu verið án vinnu
í eitt ár eða lengur. 94%
16 ára unglinga skrá
sig í framhaldsskóla. 69%
19 ára ungmenna eru að jafnaði í framhaldsskóla.




































