Norski vítisengillinn hefur komið hingað áður

Norskir vítisenglar hafa oft reynt að komast hingað til lands.

Norskir vítisenglar hafa oft reynt að komast hingað til lands. mbl.is

Leif Ivar Kristiansen, norski vítisengillinn sem vísað var frá landinu í morgun, hefur komið hingað til lands áður án hindrana, að því er norskir fjölmiðlar sögðu í kvöld. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að síðan hafi íslensk stjórnvöld hert eftirlit með þessum samtökum.

Kristiansen kom til Íslands í gær ásamt lögmanninum Morten Furuholmen. Tilgangurinn með ferðinni var að höfða mál gegn íslenska ríkinu vegna annars vítisengils, sem reyndi að koma til Íslands í síðustu viku en var þá vísað úr landi, að sögn fréttavefjar VG. 

Blaðið hefur eftir íslenskum Furuholmen að ef íslensk stjórnvöld vilji gera undantekningu frá reglum um frjáls ferðalög þá verði þau að geta sýnt fram á að raunveruleg og bráð ógn steðji að samfélaginu og öryggi landsins. „Það er ekki nóg að viðkomandi sé félagi í Vítisenglum til að víkja honum úr landi," segir lögmaðurinn.

Ætlaði að hitta félaga í MC Iceland

Furuholmen staðfestir við Aftenposten, að Kristiansen hafi ætlað að hitta félaga í MC Iceland, áður Fáfni, en að sögn ríkislögreglustjóraembættisins stendur til að íslenska félagið fái fullgilda aðild að Hells Angels samtökunum, sem eru sögð skipulögð glæpasamtök. Inngönguferli MC Iceland hafi verið stýrt frá Hells Angels-samtökunum í Noregi.

Aftenposten segir að Kristiansen hafi verið handtekinn í Ósló í tengslum við umfangsmiklar lögregluaðgerðir gegn Vítisenglum í Þrándheimi. Hann var þá grunaður um stórfellt fíkniefnabrot. Þá fannst mikill fjöldi vopna í aðgerðum lögreglu.  

Í gær hélt lögreglan áfram aðgerðum gegn Vítisenglum í Ósló og Þrándheimi.  


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bækur níu kvenna eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna.

Fjöruverðlaun eftir viku

09:42 Misritað var í Morgunblaðinu í gær að Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verði afhent í Iðnó í dag, en rétt er að það verður eftir viku, 18. febrúar næstkomandi, en þá verður haldin Góugleði í Iðnó. Gestur verðlaunahátíðarinnar verður rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. Meira »
Skjálftar á landinu í morgun.

Enn skelfur við Grímsey

09:38 Töluverður fjöldi jarðskjálfta hefur mælst í nótt og fram á morgun við Grímsey. Sá stærsti sem mælst hefur var um tvö stig og voru flestir af svipuðum styrkleika. Meira »

Opið á skíðasvæðum

Fólk á skíðum.
09:26 Þó svo auð jörð sé í höfuðborginni er víða hægt að skíða í dag. Þannig fer fram Oddskarðssmót og þar verður keppt í svigi 9 til 12 ára. Opið verður í Oddsskarði frá klukkan 10 til kl. 16 og eru aðstæður býsna góðar. Einnig er opið á skíðassvæði Dalvíkur og á skíðasvæðinu í Tindastól. Meira »

Braut rúðu í lögreglubíl

08:40 Maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði í nótt eftir að hann braut rúðu í lögreglubíl.  Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Fíkniefnasali handtekinn

08:44 Lögerglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann, sem var að selja fíkniefni við veitingahús í borginni en maðurinn var með fíkniefni í söluskömmtum innanklæða. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
Í gær, 17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
Í gær, 16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

Í gær, 16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
Í gær, 15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
Í gær, 16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
Í gær, 16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
Í gær, 15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Head skíði og Salomon skíðaskór
Ársgömul og mjög lítið notuð Head skíði 120 cm hvít með svörtum stöfum og með mj...
Travel King 585 hjólhýsi til sölu 2004
Kojur öðrumegi og hjónarúm hinum megin Isabella Fortjaldi Nánari uppslýsingar í...
Geldingsá við Akureyri
Gisting í 3ja herbergja íbúð, 7 km. frá Akureyri með fallegu útsýni. Myndir og ...
Nissan Almera Comfort árg. 2000
Einn ódýr Nissan Almera Comfort árg. 2000. Verð 280.000 Upplýsingar Hafst...
 
Aðalfundur kjördæmisráðs suðvesturkjördæmis sjálfstæðisflokksins

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suð...
Landsst.
Félagsstarf
Landsst. 6012020919 VII...
Tryggingar - vátryggingavernd
Tilboð - útboð
Mynd af auglýsingu ...
I.o.o.f.7
Félagsstarf
I.O.O.F.7.[192080271/2[F.L....