Yfir 4.000 án vinnu í eitt ár eða lengur
Skráð atvinnuleysi í janúarmánuði mældist 9% eða að meðaltali 14.705 manns. Þetta þýðir að 929 manns bættust við á atvinnuleysisskrá í janúar. 4.005 manns hafa verið án vinnu í eitt ár eða lengur.
Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 6,6%, sem þýðir að þá voru 10.456 manns að jafnaði án vinnu.
Atvinnuleysið er 9,5% á höfuðborgarsvæðinu en 8,1% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 14,5% en minnst á Vestfjörðum 3,4%. Atvinnuleysi eykst um 7,4% meðal karla en um 5,7% meðal kvenna. Atvinnuleysið er 9,9% meðal karla og 7,9% meðal kvenna.
Alls voru 16.382 atvinnulausir í lok janúar. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 13.424, af þeim voru 1.569 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl og á kynningarfundi.
Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.367 og fækkar um 90 frá lokum desember og er um 45% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok janúar. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar talsvert eða úr 3.224 í lok desember í 4.005 í lok janúar.
Alls voru 3.080 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok janúar en 2.754 í lok desember eða um 19% allra atvinnulausra í janúar.
Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá janúar til febrúar m.a. vegna árstíðasveiflu. Ekki hafa orðið miklar breytingar á nýskráningum fyrstu daga febrúar og áætlar Vinnumálastofnun að atvinnuleysið í febrúar breytist lítið og verði á bilinu 8,9%-9,3%. Í fyrra var atvinnuleysið 8,2% í febrúar.
Bloggað um fréttina
-
Jón Baldur L'Orange Kreppan kemur stórkapítalistunum ekki við -
Þórður Björn Sigurðsson Fundur um stöðu atvinnuleitenda
Innlent »
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 11. febrúar 2011, Innlent 8,5% atvinnuleysi í janúar
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Innlent Atvinnuleysið 8,2%
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Atvinnuleysi 9,3% í mars
- Föstudagur, 11. mars 2011, Innlent 8,6% atvinnuleysi
- Miðvikudagur, 11. febrúar 2009, Innlent Mesta atvinnuleysi í 14 ár
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































