2 ára fangelsi fyrir brot gegn börnum sínum
Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í 2 ára fangelsi fyrir margvísleg hegningarlaga- og barnaverndarlagabrot gegn þremur ungum börnum sínum, sem honum hafði verið treyst fyrir. Brotin voru framin á sameiginlegu heimili þeirra á tæplega þriggja ára tímabili og segir Hæstiréttur að þetta mál sé án fordæmis.
Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í 18 mánaða fangelsi en Hæstiréttur þyngdi dóminn. Þá var staðfest, að maðurinn skyldi greiða börnunum bætur, einu 1,2 milljónir og hinum tveimur 600 þúsund krónur hvoru.
Málið kom upp í byrjun árs 2008 og eftir könnun barnaverndaryfirvalda var því skotið til lögreglu. Maðurinn neitaði staðfastlega en börnin, sem eru fædd árin 1993, 1995 og 1999, báru öll vitni gegn manninum.
Maðurinn var m.a. ákærður fyrir að kasta hnífum að syni sínum og hóta honum með eftirlíkingu af skammbyssu, sem drengurinn hélt að væri raunveruleg hlaðin skammbyssa.
Þá var hann ákærður fyrir að hafa handjárnað eldri dóttur sína við ofn og handleikið síðan hníf fyrir framan hana og í nokkur skipti slegið hana í andlitið.
Einnig var hann ákærður fyrir að hafa í nokkur skipti slegið yngri dóttur sína í andlitið og klipið fast í kinnar hennar. Þá var hann ákærður fyrir að hafa hrint stúlkunni fullklæddri ofan í baðkar sem fullt var af köldu vatni og haldið henni þar í stutta stund. Þá lokaði hann stúlkuna úti í skamman tíma að vetri til þegar kalt var í veðri og barnið á náttfötum einum klæða.
Innlent »
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Með tæp 40 grömm af amfetamíni
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Dómur þyngdur um ár
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent Réðist á sambýliskonu og börn hennar
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Sýknaður af ákæru fyrir árás
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Dæmdur í 2 ára fangelsi fyrir árásir
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































