Istorrent bótaskylt
Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness um að fyrirtækið Istorrent og forsvarsmaður þess séu bótaskyld gagnvart Sambandi tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF).
Hæstiréttur staðfesti einnig lögbann, sem STEF fékk sett á vefsíðuna torrent.is í nóvember 2007. Þá var Istorrent og Svavari Lúterssyni, forsvarsmanni fyrirtækisins, er gert að greiða STEF 700 þúsund krónur í málskostnað.
Istorrent veitti netnotendum aðgang að höfundarréttarvörðu hljóð- og myndefni. Hæstiréttur segir, að Istorrent og Svavar hafi með starfrækslu vefsvæðisins og tækniuppbyggingu þess komið því til leiðar með markvissari hætti að fram gætu farið greið og umfangsmikil skráarskipti með efni, sem háð væri höfundarétti, og þannig beinlínis stuðlað að brotum notenda vefsvæðisins. Hefðu Istorrent og Svavar því brotið gegn lögvörðum rétti STEFS og því hafi lagaskilyrði verið uppfyllt til að leggja lögbannið á.
Þá taldi Hæstiréttur að Istorrent og Svavar hefði verið eða mátt vera ljóst, að háttsemi þeirra var ólögmæt og til þess fallin að valda umbjóðendum STEFS tjóni. Þótt tjónið yrði fyrst og fremst rakið til háttsemi notenda vefsvæðisins hefði hin saknæma og ólögmæta háttsemi fyrirtækisins verið meðorsök þess. Því féllst Hæstiréttur á að Istorrent og Svavar séu skaðabótaskyld gagnvart STEFi.
Samtök um hugverkavernd, sem er samstarfsvettvangur Samtóns, SMÁÍS og SÍK, segjast í tilkynningu fagna þessari niðurstöðu sem sé í samræmi við niðustöður sambærilegra mála á Norðurlöndum.
Innlent »
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Ráðist á einn stjórnenda Dróma
- Hafna ásökunum Hagsmunasamtaka heimilanna
- Hlutverk FME að rannsaka Dróma
- Jórunn Pála formaður Vöku
- Slysavarnaskólinn fékk björgunarbúninga
- Forsendur fyrir áframhaldandi ráðningu brostnar
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. febrúar 2010, Innlent Ánægður með dóm Hæstaréttar
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Árni og ríkið bótaskyld
- Miðvikudagur, 4. febrúar 2009, Innlent Lögbann á Torrent staðfest
- Laugardagur, 21. mars 2009, Innlent Áfrýjun ólíkleg
- Fimmtudagur, 10. desember 2009, Innlent Hvetja landsmenn til að kaupa íslenska tónlist
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
-
Blár Ópal tryllir lýðinn



































