Nýr sameinaður skóli í Úlfarsárdal
Úlfarsárdalur. mbl.is/Sverrir
Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í dag að stofna skóla í Úlfarsárdal sem sameinar undir einu þaki leikskóla og grunnskóla ásamt frístundastarfi fyrir börn frá eins árs aldri til tólf ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.
Þar kemur fram að einn faglegur og rekstrarlegur stjórnandi verði ráðinn að skólanum, sem mun sjá um að skipuleggja innra starf samkvæmt lögum, reglugerðum og námskrám fyrir leik- og grunnskóla og samþykktum um rekstur frístundaheimila, í samstarfi foreldra.
„Nýi skólinn mun mæta þörfum margra barna en í dag eru 65 börn úr hverfinu í leik- og grunnskólum í öðrum hverfum. Áhersla verður lögð á að íbúar, fullorðnir jafnt sem börn, hafi aðkomu að undirbúningi nýja skólans,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Haft er eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, að hún sjái mörg tækifæri opnast með stofnun nýja skólans í Úlfarsárdal. Hún telji að sú tilraun að reka saman leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili undir einu þaki miði að því að auka sveigjanleika í skólastarfi auk þess sem skóladagurinn verði heildstæðari hjá börnunum. Þetta fyrirkomulag auki jafnframt hagkvæmni í rekstri og muni vonandi nýtast vel við að móta framtíðarskipulag í skólastarfi í Reykjavík.
Skólinn mun taka til starfa haustið 2010 í húsnæði leikskólans í Úlfarsárdal. Þegar grunnskólahúsnæðið verður tilbúið verður það nýtt fyrir sameinaðan skóla ásamt leikskólahúsnæðinu. Frá hausti 2010 verða í skólanum nemendur frá eins árs til tíu ára og síðan bætist við einn árgangur árlega. Áherslur í starfseminni verða listir og lýðheilsa, umhverfismennt og læsi.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. mars 2010, Innlent Ráðin skólastjóri í Úlfarsárdal
- Föstudagur, 28. maí 2010, Innlent Dalskóli í Úlfarsárdal
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Skóflustunga að nýjum skóla í Úlfarsárdal
- Mánudagur, 19. apríl 2010, Innlent Samkeppni um nafn á nýjan skóla í Úlfarsárdal
- Þriðjudagur, 17. mars 2009, Innlent Skóli í Úlfarsárdal 2010
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































