Fréttaskýring: „Reyna að þvo hendur sínar af eigin verkum“

stækka

Ómar Óskarsson

Morgunblaðið Eftir Andra Karl andri@mbl.is

„Nú sjá menn fram á það, að mögulegt sé að taka upp viðræður á nýjum forsendum og þá vill enginn kannast við að bera ábyrgð á að hafa leitt til lykta viðræðurnar og landað Icesave-samningnum,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um grein Indriða H. Þorlákssonar um Icesave sem birtist í Fréttablaðinu í gær og birtingu draga að samningum frá desember 2008.

Bjarni segir með ólíkindum miðað við stöðu Icesave-málsins í dag að aðstoðarmaður fjármálaráðherra dragi á opinberum vettvangi fram það sem hann telur málstað Íslands síst til framdráttar.

Grein Indriða var svar við annarri skrifaðri af Kristrúnu Heimisdóttur, aðstoðarkonu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í tíð utanríkisráðherrasetu hennar. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að Indriði hafi viljað koma þessum sjónarmiðum á framfæri úr því að umræðan var hafin á annað borð og „dregnar upp, að þeirra dómi sem gjörþekkja bakgrunn Icesave-málsins, rangar ályktanir um stöðu þess í nóvember/desember árið 2008.“ Hann segist ekkert sjá að því að menn komi upplýsingum um þennan tíma á framfæri og geri þessi gögn aðgengileg. Steingrímur á þar við drögin að lánasamningum við Hollendinga og Breta frá því í desember 2008, sem birt voru á vefsvæðinu island.is í gær.

Nákvæmlega engin þýðing

Kristrún sendi raunar frá sér athugasemd síðdegis í gær þar sem kemur fram að þau drög hafi aldrei verið borin undir utanríkisráðherra, og ýmis skjöl af sama tagi „enda reyndu Bretar og Hollendingar margsinnis að knýja Íslendinga til að ganga að tvíhliða lánasamningum sem Íslendingar töldu óaðgengilega“. Kristrún segir skjölin því engum tíðindum sæta enda á þessum tíma langt í land að samningar lægju fyrir; enda lágmarksviðmið Íslands að ná pólitískum árangri á grundvelli ályktunar Alþingis um Brusselviðmiðin.

Bjarni bætir því við, að drögin hafi „nákvæmlega enga þýðingu, aðra en að þar er birtingarmynd þeirra krafna sem Bretar og Hollendingar hafa haldið á lofti frá upphafi“. Hann segir það sem máli skiptir vera, að í fyrri tíð var ekki samið um neitt. „Og það þýðir ekkert fyrir þetta fólk að reyna að þvo hendur sínar af eigin verkum. Þetta er makalaust innlegg í umræðuna á þessum tímapunkti.“

Bókanir gagna mismunandi

Ítrekað hefur verið kallað eftir því að öll gögn sem varða Icesave verði gerð opinber og oft karpað um það á Alþingi. Steingrímur segir umrædd skjöl á ábyrgð fyrri ríkisstjórnar og hún verði að svara því til hvers vegna þau voru ekki kynnt í utanríkismálanefnd eða fyrir þingmönnum. „Hins vegar er það þannig, að hluti gagna virðist ekki hafa verið bókaður með sama hætti og hvert einasta snifsi síðan við tókum við forræði málsins. Af þeim ástæðum var þetta ekki aðgengilegt hér með sama hætti og önnur gögn frá byrjun.“ Hann tekur fram að hugsanlega leynist fleiri gögn um forsögu Icesave-málsins, t.a.m. í utanríkisráðuneytinu.

Steingrímur segir hins vegar að birting gagnanna breyti engu varðandi stöðu málsins í dag, breyti ekki þörfinni á að leysa málið og „ég treysti því og trúi að það fari enginn að láta þetta hafa áhrif á stöðu málsins“.

Spurður hvort grein Indriða hafi verið birt með samþykki ráðherrans neitar Steingrímur því. „Indriði stendur fyrir sínum skrifum og hefur fullt leyfi til þess að svara fyrir sig þegar hann telur tilefni til. Ég geri engar athugasemdir við það og geri enga kröfu um það, að hann beri undir mig greinar í sínu nafni.“

6,7% vextir og afborganir til 2018

Fjármálaráðuneytið birti í gær lánasamningadrög vegna Icesave milli þáverandi samninganefnda Íslands, Bretlands og Hollands dagsett 18. og 19. desember 2008, í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þar er greiðsluskylda á lágmarkstryggingu innistæðna tryggingasjóðsins viðurkennd og kveðið á um fasta vexti, 6,7%, í samningsdrögunum við Hollendinga en ákveðið vaxtaviðmið við skuldabréfavexti (UK gilt rate) í samningsdrögunum við Breta. Skv. upplýsingum fjármálaráðuneytisins eru þetta drög sem send voru til íslenskra stjórnvalda eftir að athugasemdir höfðu verið gerðar af hálfu íslensku samninganefndarinnar. Gert var ráð fyrir 10 ára lánstíma, að afborganir af höfuðstól hæfust 2012 og þeim lyki 2018 en byrjað yrði strax að greiða vexti, tvisvar á ári, í apríl og október. Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir að þetta séu síðustu drögin sem fyrir liggi frá þessum tíma eftir að athugasemdir höfðu verið gerðar. Honum virðist hins vegar að í janúar 2009 hafi komið til ennþá nýrri útgáfa af samningsdrögunum. 6,7%

Íslendingar undirrituðu viljayfirlýsingu ásamt Hollendingum um lán á 6,7% vöxtum eftir að samninganefnd þeirra hafði skírskotað til útreikninga AGS.

5,55%

Í Icesave-samningunum sem samþykktir voru í júní voru vextirnir 5,55%. Prósentan var lækkuð með tilliti til fordæmalausra aðstæðna á Íslandi.

?%

Ef Bretar og Hollendingar fallast á að taka upp viðræður að nýju er óvíst hver prósentan verður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...

Evróvisjón með viðbættu tísti

14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »
Blíðviðri á Egilsstöðum

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mest allt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
Toyota Yaris
Toyota yaris 2004 árg. Ekinn 114 þ., beinskiptur og skoðaður 2013. Mjög vel með ...
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...