Icesave-fundir í næstu viku
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að gert sé ráð fyrir að rætt verði við Breta og Hollendinga um Icesave eftir helgina. Væntanlega muni liggja fyrir undir lok næstu viku hvort af nýjum samningum verður.
„Við munum nýta þessa helgi til að fara nánar yfir vinnutilhögun og skipan þeirra sem verða í samninganefnd fyrir Íslands hönd og þá samningsmarkmið frekar," sagði Jóhanna og bætti við að mikilvægt væri að stjórn og stjórnarandstaða kæmu sameinuð að þessu verkefni.
„Væntanlega verður fundur strax eftir helgina með Hollendingum og Bretum og ég vona að það muni skýrast undir lok næstu viku hvort að úr þessu öllu saman verði nýr samningur milli Íslendinga, Breta og Hollendinga."
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði að fyrir lægi að bandaríski lögmaðurinn Lee Buchheit muni leiða íslensku nefndina. Hann sagði að það væri ekki endanlega staðfest hvort verði af fundum með Bretum og Hollendingum eftir helgina en það muni væntanlega liggja fyrir undir kvöld.
Steingrímur sagði jafnframt, að það þjónaði ekki hagsmunum Íslands að menn færu að bollaleggja um óorðna hluti og jafnvel leggjast í útreikninga á grundvelli þess.
„Við erum að reyna að koma af stað viðræðum við afar viðkvæmar aðstæður. Þær eru viðkvæmar bæði hér innanlands og gagnvart gagnaðilunum. Það hljóta allir hugsandi menn að sjá að það þjónar ekki hagsmunum Íslands í þessari stöðu, að fara að bollaleggja um inntakið eða veganestið í þessar viðræður, sem eðli málsins samkvæmt fara fram í trúnaði á milli aðila. Og að leggjast í útreikninga á grundvelli bollalegginga um að verið sé að fjalla um þetta og hitt er algerlega fráleitt," sagði Steingrímur.
Jóhanna tók í sama streng. „Það sem máli skiptir er að við sameinuð stjórn og stjórnarandstaða náum niðurstöðu í þetta mál og komum þá heim með betri samninga en eru uppi á borðinu núna," sagði hún.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Þarf að komast út úr fortíðinni. -
Ómar Geirsson "Íslendingar skulda ekkert" -
Guðlaugur Hermannsson Þvílíkt bull í ríkisstjórninni. Afhendum eignasafnið strax til Breta og ...
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. janúar 2010, Innlent Ekki formleg niðurstaða
- Föstudagur, 5. mars 2010, Innlent Steingrímur: Ólíklegt að ég kjósi
- Mánudagur, 18. janúar 2010, Innlent Stefnt að fundi í kvöld
- Miðvikudagur, 3. febrúar 2010, Innlent Eignir Landsbankans gætu skilað meiru en áður var talið
- Þriðjudagur, 2. mars 2010, Innlent Nefndin heim á morgun?
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































