Leitað í Lúxemborg

Kaupþing í Lúxemborg. stækka

Kaupþing í Lúxemborg. Reuters

Ein umfangsmesta aðgerð embættis sérstaks saksóknara hefur farið  í Banque Havilland í Lúxemborg undanfarna daga en bankinn tók við starsfsemi Kaupþings í Lúxemborg á síðasta ári. Rannsóknin tengist viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi og skuldatryggingum.

„Það er ennþá verið að gefa skýrslur hjá lúxemborgsku lögreglunni og það klárast í kvöld,“ segir Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari í samtali við mbl.is.

Aðspurður segir hann ráðgert að alls verði ellefu manns yfirheyrðir vegna málsins úti. Spurður hvort allir í hópnum séu Íslendingar segist Ólafur Þór ekki vilja gefa upp þjóðerni einstaklinganna en tekur fram að um sé að ræða einstaklinga sem búsettir séu í  Lúxemborg og taldir eru geta veitt upplýsingar um málið. Spurður hvort um sé að ræða einstaklinga sem áður hafi verið yfirheyrðir hérlendis segir  Ólafur Þór það eiga við í einhverjum tilvikum.

Að sögn Ólafs Þórs hafa aðgerðir vikunnar verið í undirbúningi síðan í september sl. Rannsóknin sé ekki aðeins sú umfangsmesta hjá saksóknara heldur mun einnig vera með þeim stærri í Lúxemborg. „Þetta er víðtæk aðgerð og yfirvöld í Lúxemborg hafa lag sig fram við að verða við beiðni okkar um aðstoð.“

Ólafur Þór fór utan við fimmta mann á sunnudaginn var til undirbúnings með lögreglunni í Lúxemborg á mánudag, en aðgerðir hófust á þriðjudag og er ráðgert að þeim ljúki í kvöld og starfsmenn sérstaks saksóknara komi heim á morgun. Leitað var á tveimur stöðum hjá Banque Havilland og í heimahúsi.

„Aðgerðirnar eru framkvæmdar á grundvelli réttarbeiðna, sem embættið er búið að senda út til yfirvalda í Lúxemborg. Það er verið að hrinda í framkvæmd þeim beiðnum og þá er framkvæmdin alfarið í hendi lögreglunnar í Lúxemborg. Við erum til aðstoðar ef á þarf að halda.“

Spurður hvers kyns gögn hafi verið lagt halda á segir Ólafur Þór bæði um að ræða skjalaleg gögn sem og rafræn gögn. Spurður um ótta margra við því að mönnum myndi takast að eyða gögnum áður en til þeirra næðist svarar Ólafur Þór: „Þau gögn sem við töldum vera inni í bankanum reyndust vera þar, þannig að leitin bar árangur.“

Tóku yfir Kaupþing í júlí

Breska Rowland fjölskyldan, sem hefur verið viðloðandi fjárfestingar og fjármálaumsýslu í um 45 ár og m.a. sinnt fjárfestingarráðgjöf í gegnum fyrirtæki sitt Blackfish Group, keypti Kaupþing í Lúxemborg í júlí í fyrra og sameinaði hann Banque Havilland S.A. 

Í október var bankinn opnaður formlega á ný í húsnæðinu í Lúxemborg þar sem Kaupþing var áður með rekstur. Magnús Guðmundsson, sem var framkvæmdastjóri Kaupþings í Lúxemborg, var ráðinn framkvæmdastjóri Banque Havilland þar.

Það var Andrés Bretaprins, sem opnaði bankann formlega en einnig voru ráðherrar í Lúxemborg og Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, viðstaddir.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »
Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.

Ákærður fyrir að stinga mann

14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
JEEP GRAND CHEROKEE
Jeep Grand Cherokee Overland 4.7 , 06/2004, ekinn 139 þús. Ssk., le...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin...
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa. Gasnaglabyssa GX 100. Upplýsingar í síma 8935005 ...
 
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...