12% fjölgun mála hjá Hæstarétti milli ára

Hæstiréttur Íslands. stækka

Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Brynjar Gauti

Skráðum málum hjá Hæstarétti fjölgaði um tólf prósent milli áranna 2009 og 2008. Alls voru skráð 782 mál á síðasta ári en þau voru tæplega sjö hundruð árið 2008. Meðferð 654 mála var lokið á árinu og eru það 142 fleiri en að meðaltali árin 2003 til 2007. Þetta kemur fram í ársskýrslu Hæstaréttar fyrir síðasta ár.

Nokkuð stöðug aukning hefur verið á skráðum málum hjá Hæstarétti undanfarin ár. Til dæmis voru þau rétt tæplega fimm hundruð árið 2003, ríflega fimm hundruð árið 2004 og um 550 árið 2005. Árið 2006 varð fremur mikil fjölgun frá fyrra ári en þá voru skráð 673 mál. Svipaður fjöldi var árið 2007 og svo 697 árið 2008. Á síðasta ári fjölgaði málum um 85, þar af fjölgaði kærumálum um 34 eða 10% og munnlega fluttum málum um 51 eða 14%.

51 sératkvæði skilað á árinu

Í samræmi við fjölgun skráðra mála hefur dæmdum málum einnig fjölgað. Dómar á síðasta ári voru 24 fleiri en á árinu 2008 og líkt og áður segir 142 fleiri en meðaltal áranna 2003 til 2007.

Á síðasta ári skiluðu dómarar 29 sératkvæðum í munnlega fluttum málum, þar af sextán sinnum annarri efnislegri niðurstöðu og þrettán sinnum annarri niðurstöðu að hluta. Í kærumálum skiluðu dómarar 22 sératkvæðum og þar af var nítján sinnum um aðra niðurstöðu að ræða og þrisvar sinnum aðra niðurstöðu að hluta.

Ódæmdum einkamálum fjölgar

Þrátt fyrir töluverða fjölgun dæmdra mála fjölgaði ódæmdum einkamálum í árslok um 35 frá árslokum 2008, þegar þau voru 150. Ódæmdum kærum fjölgaði um fjórar en sakamálum fækkaði hins vegar um eitt. 

Í árslok 2009 biðu einnig sex beiðnir um endurupptöku mála afgreiðslu. Í byrjun árs beið eitt mál afgreiðslu og þrettán beiðnir bárust á árinu. Af þeim var ein samþykkt en sjö hafnað.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...

Evróvisjón með viðbættu tísti

14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »
Blíðviðri á Egilsstöðum

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mest allt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
Veiðin - Ormar til sölu
Nú er maðkur í mysunni, vorið komið og veiðin að hefjast! Úrvals silungsmaðk...
Ormar í veiðina frá Óþekktarormum
Nú er maðkur í mysunni og ormar til sölu! Úrvals laxaormar feitir og vænir á ...
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu aðeins 4.000 kr. stk. Eru eins og nýjir (mjög ...
 
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...