Vilja lagaheimild fyrir gjaldi vegna skipulags
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga telur mikilvægt að gert verði ráð fyrir heimild sveitarfélaga til gjaldtöku vegna aðalskipulags við endurskoðun skipulagslaga, eins og gert var ráð fyrir í frumvarpi sem lagt var fram 2008. Óeðlilegt sé að vinna við skipulag vegna virkjana sé greidd af almennu skattfé.
Stjórnin mótmælir harðlega synjum umhverfisráðherra á staðfestingu aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Flóahrepps. Skipulagið gerir ráð fyrir virkjunum í neðrihluta Þjórsár.
„Sú niðurstaða er ekki í samræmi við stjórnsýslu umhverfisráðherra á undanförnum árum sem hefur margsinnis staðfest aðalskipulagstillögur þar sem þeir aðilar sem að framkvæmdum standa hafa kostað breytingar á aðalskipulagi. Greinilegt er að jafnræðis hefur ekki verið gætt og nauðsynlegt er því að ráðherrann geri sérstaklega grein fyrir því misræmi. Réttaróvissa um fyrri staðfestingar umhverfisráðherra á aðalskipulagi hefur einnig skapast sem sveitarfélögin geta ekki búið við,“ segir í ályktun stjórnar SASS.Þá er því haldið fram að synjun ráðherrans sé í algjöru ósamræmi við markaða stefnu umhverfisráðherra og umhverfisráðuneytisins sem hafi tvisvar frá árinu 2007 lagt fram frumvörp þar sem gert er ráð fyrir að sveitarfélögin geti lagt á gjöld til að mæta kostnaði við skipulagsvinnu.
„Almenn samstaða var um þetta sjónarmið enda þótt frumvörpin hafi ekki verið afgreidd. Raunar er ekkert í núverandi lögum sem bannar slíkt. Afar óeðlilegt er að að slíkur kostnaður sé greiddur af almennu skattfé og þar með íbúum viðkomandi sveitarfélaga. Ljóst má vera að gjaldtökuheimild frumvarps til skipulagslaga sem lagt var fram á vorþingi 2008, en varð ekki að lögum á því þingi, er mikið hagsmunamál fyrir sveitarfélögin og íbúa þeirra og hljóta sveitarfélögin því að leggja áherslu á að áfram verði gert ráð fyrir slíkri lagaheimild þrátt fyrir fyrrgreindar ákvarðanir umhverfisráðherra.“
Þá segir stjórn SASS að það veki athygli að umhverfisráðherra sem réttlæti ákvörðun sína með vísan til skipulagslaga skuli á sama tíma brjóta skýr fyrirmæli laganna um þann tímafrest sem ráðherra hefur til að taka ákvörðun um staðfestingu aðalskipulags. „Aðalskipulagstillögur sveitarfélaganna voru samþykktar annars vegar fyrir 11 mánuðum og hins vegar fyrir 14 mánuðum, en ráðherrann hefur 6 mánaða frest samkvæmt lögunum.
Stjórn SASS átelur einnig harðlega að ráðherrann skuli með ákvörðunum sínum leggja stein í götu virkjanaframkvæmda sem hafa mikla efnahagslega þýðingu fyrir þjóðfélag í miðri efnahagskreppu. Fyrir liggur að Landsvirkjun hefur þegar frestað viðræðum við fyrirtæki um sölu á orku. Stjórn SASS vekur sérstaka athygli á að um virkjun endurnýjunarlegrar orku er að ræða. Samkvæmt fyrri hluta rammaáætlunar frá 2003 þá er ljóst að virkjanakostir í neðri hluta Þjórsár eru meðal þeirra allra vænlegustu með tilliti til umhverfissjónarmiða auk þess sem um hagkvæma virkunarkosti er að ræða,“ segir í ályktun stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.




































