Förgun pólsks tóbaks stöðvuð
Tæting og förgun tóbaks frá Póllandi hefur verið stöðvuð að beiðni Umhverfisstofnunar. Mun stofnunin hafa samband við yfirvöld í Póllandi vegna málsins en hugsanlegt er að tóbakið verði endursent. Umhverfisstofnun telur að staðið hafi verið ólöglega að innflutningi tóbaksins.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í síðustu viku, að nú stæði yfir tæting og förgun á 20 gámum af sígarettum, sem hefðu verið fluttar til landsins frá Póllandi. Í fréttinni kom fram að aldrei hefði staðið til að selja tóbakið hér á landi því hingað hefði það verið flutt í þeim eina tilgangi að farga því. Umhverfisstofnun hóf athugun málsins þar sem óheimilt er að flytja úrgang til förgunar hér á landi nema fyrir liggi tilskilin leyfi.
Stofnunin segir, að meginreglan varðandi förgun úrgangs sé, að förgun fari fram í því landi þar sem úrgangurinn fellur til. Er tilgangurinn m.a. að koma í veg fyrir að fátæk ríki verði að förgunarstöðum fyrir auðug ríki. Óheimilt er að flytja úrgang milli landa til förgunar nema að fengnum tilskildum leyfum. Heimilt er að flytja endurvinnanleg efni á milli landa til endurvinnslu.
Við athugun Umhverfisstofnunar fékkst staðfesting hjá Rolf Johansen & Co ehf., sem stóð að þessum innflutningi, að tóbakið hefði verið flutt til landsins í þeim eina tilgangi að farga því. Umhverfisstofnun telur því ljóst að áður en ráðist var í innflutninginn hafi legið fyrir að um úrgang væri að ræða, en ekki vöru, og því hafi verið skylt að tilkynna innflutninginn til stofnunarinnar og óska eftir leyfi hennar. Þar sem stofnuninni barst ekki tilkynning um innflutninginn og veitti ekki leyfi fyrir honum telur stofnunin að hér hafi verið um að ræða ólögmætan flutning úrgangs til landsins.
Um var að ræða gallaða framleiðslu á vörum tóbakfyrirtækisins JPI í Póllandi en JPI framleiðir m.a. Winston, Camel og Salem. Sígaretturnar sem fluttar voru til Íslands eru þó væntanlega af ódýrari gerð.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Bjarki Smárason Þá verður ekki reykt í boði Sorpu.... -
Jónína Sólborg Þórisdóttir Hahaha nice try hjá Pólverjum -
Gísli Foster Hjartarson Er Ísland 3ja heims ríki? -
Ómar Skapti Gíslason Er Ísland förgunarland? -
Einar Guðjónsson Ísland verði fremst í ruslurðun í Evrópu. -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Víða í heiminum er reynt að losna við hættulegan úrgang ...
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. febrúar 2010, Innlent Farga um 20 gámum af tóbaki
- Laugardagur, 13. febrúar 2010, Innlent Áfengi sem spilliefni
- Fimmtudagur, 20. ágúst 2009, Innlent Brýnt að ganga frá tilraunasvæði ORF
- Þriðjudagur, 1. september 2009, Innlent Nýtt starfsleyfi fyrir Járnblendiverksmiðjuna
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Orðalag í bréfum verður endurskoðað
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suð...




































