Fréttaskýring: Þrjú hundruð mál þingfest á einum degi
Salir Héraðsdóms Reykjavíkur eru vel nýttir og skipuleggja þarf upp á nýtt þegar þrír nýjir dómarar taka til starfa þann 1. maí nk.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Þrátt fyrir að holskeflan hafi enn ekki riðið yfir er álag á stærstu dómstóla landsins mikið. Sérstaklega er fjölgun munnlegra fluttra einkamála áhyggjuefni, enda oft á tíðum þung í vöfum og mjög tímafrek. Á síðasta ári voru þau um 350 fleiri en í meðalári hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, alls 1.077. Þróunin fyrsta eina og hálfa mánuðinn er á sama veg.
Raunar hafa færri einkamál verið þingfest það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra. Í ár hafa 1.369 einkamál verið þingfest en voru 1.966 í fyrra. Það segir þó ekki alla söguna því einföldum skuldamálum hefur fækkað á meðan flóknari málum, sem eru flutt munnlega, fjölgar. Af þessum 1.369 málum eru 143 sem flutt verða munnlega, en þau voru aðeins 130 af 1.966 fyrir ári. Og raunar er varla hægt að segja aðeins, því síðasta ár var metár þegar kom að munnlegum flutningi einkamála.
Vandi að spá um X-málin
Burtséð frá einkamálunum þá eru fleiri mál sem eiga eftir að valda ómældu álagi; X-málin, þ.e. ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta. Kröfuskrár bankanna hafa verið birtar auk annarra gjaldþrota fjármálafyrirtækja. Kröfurnar eru gríðarlega margar og upphæðirnar í mörgum tilvikum svimandi háar. Þegar kemur að mati á rétthæð krafna er auðséð að kröfuhafar leita réttar síns fyrir dómstólum.Frá hruni fjármálakerfisins hafa vel á annað hundruð X-mál verið tekin fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Færustu spámenn eiga hins vegar í vandræðum með að spá hversu mörg mál koma til kasta dómstólsins á þessu ári, telja nóg að tala um holskeflu.
Nýverið voru fimm stöður héraðsdómara auglýstar lausar til umsóknar. Frestur til að sækja um rennur út 25. febrúar nk. og ráðgert að dómarar verði skipaðir frá 1. maí. Þrír þeirra munu starfa við Héraðsdóm Reykjavíkur. Búið er að ráða aðstoðarmenn þeirra og sóttu 63 einstaklingar um stöðurnar þrjár.
Enn langt frá metárinu 2002
Þegar skoðuð er þróun málafjölda hjá héraðsdómstólunum átta, sést athyglisverð bylgja í kringum árið 2002. Árið 2001 voru ríflega 31 þúsund mál skráð en ári síðar tæplega 41 þúsund, bylgjan fjaraði snögglega út og árið 2005 voru 23 þúsund mál skráð. Til samanburðar má nefna að á síðasta ári voru málin 33.610, sem var fjölgun um ellefu prósent frá 2008.Að miklum hluta má rekja bylgjuna á fyrstu árum aldarinnar til fjölgunar skuldamála. Þau voru þó mörg hver í minni kantinum, og þar með skriflega flutt. Í þeirri bylgju sem nú ríður yfir, og sér ekki fyrir endann á, eru mun fleiri mál flutt munnlega.
Erfitt er að segja til um hvort árið 2004 verði toppað í efnahagslægðinni sem gengur yfir, en nefna má að síðastliðinn fimmtudag var unnið frá morgni til kvölds í Héraðsdómi Reykjavíkur við þingfestingar og urðu þær alls um þrjú hundruð. Talið er víst að fleiri dagar af þeirri stærðargráðu eigi eftir að sjást á næstu misserum.




































