Kannabisræktun stöðvuð í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í bílskúr í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 10 kannabisplöntur og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni.

Karlmaður um fertugt var færður á lögreglustöð i tengslum við rannsókn málsins og hefur hann játað aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert