Meiri tekjur af atvinnusköpun
„Með markvissri vinnu hefur verið lagður traustur grunnur að
fjölbreyttri atvinnuuppbyggingu í Reykjanesbæ. Styrkur svæðisins felst m.a. í nálægð við alþjóðaflugvöll, stórskipahöfn og orkuauðlindir,“ segir m.a. í nýrri skýrslu Capacent þar sem tekjur Reykjanesbæjar af atvinnusköpun eru metnar.
Í skýrslunni er m.a. fjallað um Keili, Verne Holding, heilsuverkefni, ferðaþjónustu, Norðurál, Kísilmálverksmiðju, HS orku og Landsnet. Í niðurstöður skýrslunnar segir: „Fyrst og fremst felst styrkurinn þó í öflugum íbúum sem hafa á undanförnum árum staðið þannig að allri uppbyggingu að telja verður mjög líklegt að stór hluti þeirra verkefna sem eru reifuð í þessari skýrslu komist í framkvæmd.
Samkvæmt skýrslu Capacent, um áhrif af nýjum atvinnuverkefnum í Reykjanesbæ, er gert ráð fyrir að útsvartekjur vegna nýrra atvinnuverkefna í Reykjanesbæ verði um 4,3 milljarðar kr. á árunum 2010-2013. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ.
Í fram lögðum áætlunum Reykjanesbæjar fyrir sama tímabil er hins vegar gert ráð fyrir að útsvarstekjur af nýjum atvinnuverkefnum verði samtals 1,5 milljarðar kr. Sú niðurstaða þótti boða mikil jákvæð umskipti í rekstrarstöðu bæjarsjóðs. Gangi niðurstöður Capacent eftir yrðu umskiptin því augljóslega enn jákvæðari.
Samkvæmt skýrslunni eru uppsafnaðar áætlaðar tekjur Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar vegna yfirstandandi og fyrirhugaðrar atvinnuuppbyggingar á árunum 2010 til 2013 samtals tæplega 5 milljarðar króna.
Í skýrslu Capacent segir m.a. að uppsöfnuð aukning fasteignagjalda á tímabilinu nemi um 400 milljónum króna. Hér sé aðeins um að ræða mat á fasteignagjöldum vegna þeirra bygginga sem tengjast atvinnuuppbyggingunni en ekki vegna aukins íbúðarhúsnæðis sem af þessu leiðir. Umferð um höfnina í Helguvík muni aukast sem hækki tekjur Reykjaneshafnar af hafnargjöldum um 250 milljónir króna fyrir tímabilið í heild.
Í máli Árna Sigfússonar bæjarstjóra, við kynningu á skýrslunni í bæjarstjórn sl. þriðjudag, kom fram að þrátt fyrir niðurstöðu Capacent og þótt mörg þau verkefni sem skýrslan fjallar um séu nú á fullri ferð, telji forsvarsmenn Reykjanesbæjar að varfærnissjónarmið skuli ráða för og muni því ekki leggja fram endurskoðaða þriggja ára tekjuáætlun.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Miðvikudagur, 6. maí 2009, Innlent Tap Reykjanesbæjar rúmlega 8 milljarðar
- Miðvikudagur, 17. nóvember 2010, Innlent Endurskoðendur settu fyrirvara
- Föstudagur, 19. nóvember 2010, Innlent Framsóknarmenn hafa áhyggjur af fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar
- Miðvikudagur, 5. janúar 2011, Innlent Reykjanesbær leiti á náðir ráðuneytis
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































