Reka þarf ríkið á ódýrari hátt
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Viðskiptaþingi í dag, að ekki yrði undan því vikist að ríkið taki á sig stærri hlut við að koma efnahagslífinu á kjöl á nýjan leik. Þá þurfi að reka ríkið og stofnanir þess á einfaldari og ódýrari hátt en nú er gert.
„Aðhaldið er mikið á þessu ári og óspart er skorið niður í opinberum rekstri. Á tveimur árum mun halli ríkissjóðs fara úr rúmum 200 milljörðum í tæpa 100 milljarða. Það verður því að nást árangur í sameiningu ráðuneyta og stofnana og verkefna og endurskoðun á starfsemi hins opinbera ef okkur á að takast að knýja fram einfaldari og betri rekstur. Það er stórt verkefni og mun reyna á stjórnkerfið til hins ítrasta. En undan því verður heldur ekki vikist ef vel á að fara," sagði Jóhanna.
Hún vitnaði í skýrslu Viðskiptaráðs, sem liggur fyrir þinginu, þar sem segir að stærsta áskorun stjórnmálamanna sé að standast ágang þrýstihópa og láta heildarhagsmuni ráða för við ráðstöfun fjármuna.„Þetta eru orð í tíma töluð þegar við sjáum volduga hagsmunahópa rísa upp á afturlappirnar og gera hróp að stjórnvöldum gegnum auglýsingastofur, fjölmiðla og áróðursherferðir. Þá er vissulega nauðsyn að hafa sterk bein og vonandi fáum við stuðning Viðskiptaráðs til þess að standast áganginn," sagði Jóhanna og uppskar klapp fundargesta.
Handstýring fjármálakerfisins upphafið að hruninu
Jóhanna sagði einnig í ræðu sinni, að þeim sjónarmiðum hefði verið haldið fram að ríkisstjórnin ætli að láta það afskiptalaust að sömu persónur og leikendur og fóru með stórt hlutverk í fjármála- og viðskiptalífinu fyrir hrun, verði áfram við stjórnvölinn.
„Af þessu tilefni vil ég láta koma fram að ég er algerlega mótfallin því að stjórnmálamenn handstýri fjármálakerfinu. Slík handstýring er nú talin upphafið að bankahruninu þegar einkavæðing bankanna fór út af sporinu árið 2002 og sérvöldum aðilum voru afhent völdin í bankakerfinu án þess að þeir reiddu fram annað en lánsfé. Og því fór sem fór. Það verður að fara fram ítarleg rannsókn á þessum afdrifaríka kafla í sögu fjármálakerfis þjóðarinnar þar sem allt verður krufið til mergjar," sagði Jóhanna.
Bloggað um fréttina
-
Guðlaugur Hermannsson Þingmenn verði aðeins 33 og engir "aðstoðarmenn" það sparar mikið. -
Jón Rúnar Ipsen Manni verður flökurt f því að hlusta á svona -
Ingvi Rúnar Einarsson Annað er að tala,hitt að framkvæma. -
Helgi Rúnar Jónsson HAGSÝNA HÚSMÓÐIRIN -
Gísli Foster Hjartarson Óvænt útspil -
Þórarinn Þ Gíslason BYRJUM Á ÞVÍ AÐ STOFNA RANSÓKNARFERILSRÁÐ ÞINGMANNA. AÐ ÞEIR HAFI ... -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Jóhanna er yfirlýsingaglöð -
Jóhannes Ragnarsson Stundum brosir auðvaldið til vinstri -
Finnur Bárðarson Brandararáðið -
Vigdís Stefánsdóttir Byrja efst takk -
Gunnar Borgþór Sigfússon Hver á að borga sparnaðinn. -
Magnús Sigurðsson Það er ljóst hvar má spara. -
Ómar Skapti Gíslason Hallelúja hún kemur alltaf með eitthvað nýtt!!
Innlent »
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Háskólakennsla
Tvö störf við Verkfræði- og náttúruvís...






































