Hagar ætla að áfrýja

Hagar ætla að áfrýja til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Dómstóllinn hafnaði kröfu Haga um að ógilda þá niðurstöðu samkeppnisyfirvalda, að Hagar væru í markaðsráðandi stöðu á matvörumarkaði og hefðu brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga um undirverðlagningu í svonefndu „mjólkurstríði" árið 2005.

Héraðsdómur staðfesti einnig ákvörðun Samkeppnisyfirvalda um að Hagar greiði 315 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna lagabrotanna.

Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir í tilkynningu, að dómi héraðsdóms verði áfrýjað til Hæstaréttar, m.a. af eftirfarandi ástæðum:

Ekki liggja fyrir mörg dómafordæmi er varða undirverðlagningu og Samkeppniseftirlitið hefur ekki gefið út almennar leiðbeiningar varðandi þetta efni. Ekki er vikið beinum orðum að undirverðlagningu í 11. gr., samkeppnislaga, um atriði sem falla undir misnotkun á markaðsráðandi stöðu heldur byggt lögskýringargögnum og fræðisetningum. Þegar af þeirri ástæðu telja Hagar hf. slíka réttaróvissu ríkja um þau atriði sem fjallað er um dómi héraðsdóms að nauðsynlegt sé að hann sæti endurskoðun af hálfu æðri dóms þar sem hún hafi almennt gildi.

Umrætt verðstríð hófst í lok febrúar 2005 og var því gerð greinargóð skil í fjölmiðlum. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hófst í byrjun júní 2006 með upplýsingabeiðni sem var svarað í byrjun ágúst 2006. Þrettán mánuðum síðar eða í lok nóvember 2007 barst andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu sem Hagar tóku afstöðu til og sendu svör 1. febrúar 2008. Það var svo eftir hádegi föstudaginn 19. desember 2008 sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um 315 milljón króna stjórnvaldssekt barst Högum, í miðri jólaverslun og næstum 4 árum eftir að verðstríðið byrjaði. Hagar eru ekki sammála því mati héraðsdóms að ekki hafi verið brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga um eðlilegan málshraða. Jafnframt telja Hagar að rannsóknarregla hafi verið brotin en undir það tekur héraðsdómur ekki og telur rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafa verið fullnægjandi. Á þessi atriði mun reyna við áfrýjun málsins.

Hagar munu krefjast endurskoðunar á því að dómurinn fellst á að Hagar hf. hafi verið í markaðsráðandi stöðu en því hefur fyrirtækið mótmælt frá upphafi.

Yfirburðir í markaðshlutdeild 

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir m.a. að fram komi í málinu að Hagar hafi yfirburði í markaðshlutdeild á matvörumarkaði. Á landinu öllu hafi hlutdeild Haga verið yfir 50%. Þessi hlutdeild Haga hafi vaxið mikið undanfarin ár á kostnað annarra keppinauta. Á höfuðborgarsvæðinu hafi félagið verið með um 60% markaðshlutdeild. Markaðshlutdeild keppinautanna var mun minni. Í ljósi m.a. þessarar hlutdeildar var talið að Hagar væru í markaðsráðandi stöðu.

Samkeppniseftirlitið segir, að í dómi héraðsdóms komi fram það mat, að brot Haga hafi verið sérstaklega alvarleg. Hafi Hagar hafi með þessum aðgerðum skaðað hagsmuni neytenda og fyrirtækið hafi mátt vita að þær væru ólögmætar. Fellst dómurinn á að 315 mkr. stjórnvaldssekt hafi verið hæfileg viðurlög. Er þetta hæsta sekt sem lögð hefur verið á hér landi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu, segir Samkeppniseftirlitið.

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur

Tilkynning Samkeppniseftirlitsins

PDF-skrá Tilkynning Haga
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...

Evróvisjón með viðbættu tísti

14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »
Blíðviðri á Egilsstöðum

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mest allt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
TILBOÐ TOYOTA LANDCRUSIER 90 VX FLOTT EINTAK 50 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFA
Er með flott eintak af 50 ára afmælisútgáfunni af Toyota Landcrusier 90 VX. Ekin...
TÖKUM GARÐINN Í GEGN!KLIPPINGAR, TRJÁFEL
Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hre...
 
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....