Vilja forða nemendum frá fíkniefnaneyslu
Stjórnendur Tækniskólans segja, að þeim sé mjög annt um velferð nemenda sinna og orðspor skólans. Neysla fíkniefna sé bölvaldur sem skólinn vilji forða nemendum sínum frá. Í þeim tilgangi einum hafi verið gripið til fíkniefnaskimunar í skólanum.
Þetta kemur fram á heimasíðu skólans þar sem fjallað er um leit lögreglu og tollgæslumanna að fíkniefnum í skólanum 11. febrúar. Hafa þessar aðgerðir sætt gagnrýni og meðal annars orðið tilefni fyrirspurna frá umboðsmanni Alþingis.
Fram kemur, að skólinn hafði fyrst samband við þessi lögreglu og tollgæslu á síðasta ári og óskaði eftir samstarfi um slíka heimsókn. Um síðustu jól var gerð forkönnun í skólahúsinu af hálfu lögreglu og tollgæslu þar sem farið var með hunda um skólann. Ekkert fannst í þeirri heimsókn en ákveðið að skima húsið aftur þegar nemendur og starfsmenn væru komnir til starfa eftir frí.
Skimunin nú var gerð í húsnæði skólans að Skólavörðuholti í hádegishléi. Allir inngangar voru vaktaðir af starfsmönnum og nemendum og starfsmönnum bent að fara út um aðalinnganginn. Þar var öllum heimilt að fara inn og út. Forvarnarfulltrúi skólans var ásamt lögregluþjóni með hund við þann inngang.
„Á þessum tíma voru nemendur ýmist í kennslu, í matsal eða á göngum skólans. Ferðafrelsi um skólann var ekki hindrað á nokkurn hátt. Ekki er því rétt sem haldið hefur verið fram að nemendum hafi verið meinaður aðgangur að skólanum eða verið lokaðir inni á meðan að skimunin fór fram. Engin fíkniefni fundust á nemendum skólans, en höfð voru afskipti af nokkrum nemendum sem vísbendingar voru um að kynnu að hafa komist í snertingu við fíkniefni og voru þeir teknir í viðtal. Rétt er að leggja áherslu á að ekki var leitað á nemendum í þessu samhengi en þeir beðnir um að tæma vasana," segir á heimasíðu skólans.
Þá kemur fram, að á meðan tollgæsla og lögregla voru að störfum í húsinu hafi öllum foreldrum nemenda yngri en 20 ára sendur tölvupóstur þar sem sagt var frá því að fíkniefnaleitarhundar væru í skólanum og framkvæmd þessarar aðgerðar skýrð. „Fjölmargir foreldrar hafa haft samband við skólann og þakkað sérstaklega fyrir hvernig staðið var að málum," segir á heimasíðunni.
Bloggað um fréttina
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Virðingarvert framtak hjá lögreglu. -
Stefán Helgi Kristinsson Stjórnarskrábrot? -
Hrappur Ófeigsson Víkinga sveit og rafbyssur. -
Helga R. Einarsdóttir Merkilegt hvað fólk er fljótt að gleyma -
Stefán Bogi Sveinsson Og hvarlaði aldrei að ykkur...
Innlent »
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Innlent Heimdallur gagnrýnir fíkniefnaleit
- Fimmtudagur, 20. ágúst 2009, Innlent Fjárhagur Landakotsskóla farið versnandi
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Innlent Þrjár námsbrautir lagðar niður hjá Háskólanum í Reykjavík
- Mánudagur, 20. desember 2010, Innlent Undirbúa aðgangstakmarkanir
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent FÁ opnar sjónvarpsvef
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































