Ármann sigraði í prófkjörinu

Ármann Kr. Ólafsson er með nokkuð örugga forystu í prófkjörinu, …
Ármann Kr. Ólafsson er með nokkuð örugga forystu í prófkjörinu, en talningu er ekki lokið. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ármann Kr. Ólafsson sigraði í í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Hann fékk 1677 atkvæði í 1. sætið eða 52,4% atkvæða. Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, sem einnig sóttist eftir 1. sætinu lenti í 3. sæti. Hann fékk 1253 atkvæði í 1. sætið eða 40% atkvæða.

Alls greiddu 3197 atkvæði í prófkjörinu, en á kjörskrá voru 5998. Kosningaþátttaka var því 56%. 

Ármann hlaut 1677 í fyrsta sæti. Hildur Dungal varð í öðru sæti með 1668 atkvæði, Gunnar I. Birgisson varð í þriðja sæti með 1366 atkvæði, Margrét Björnsdóttir varð í fjórða sæti með 1329 atkvæði,  Aðalsteinn Jónsson varð í 5. sæti með 1468 atkvæði, Karen Halldórsdóttir varð í 6. sæti með 1625 atkvæði og Árni Bragason er í 7. sæti með 2015 atkvæði.

Árni og Karen höfðu sætaskipti undir lok talningarinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk um 44% atkvæða í síðustu bæjarstjórnarkosningum og fimm menn kjörna. Talsverð endurnýjun verður á listanum því að af þessum sjö hafa einungis Ármann og Gunnar setið í bæjarstjórn.

http://xdkop.is/images/stories/Profkjor_kynningarefni/22.40.pdf

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert