Lottóvinningshafar skila sér
Vinningshafarnir í Lottóinu síðasta laugardag skiluðu sér allir í gær til Íslenskrar getspár með vinningsmiðana. Í frétt frá Íslenskri getspá segir að fyrsti vinningshafinn hafi keypt miðann í Olís við Sundagarða. Sá og notaði reyndar vinning frá helginni á undan til að greiða fyrir miðann en þá hafði hann fengið 3 réttar tölur.
Þetta var ungur fjölskyldufaðir sem á tvö lítil börn og býr fjölskyldan í tveggja herbergja íbúð í höfuðborginni. Þau voru farin að leita sér að stærra húsnæði. Þessi flotti vinningur léttir þeim því aldeilis lífið og auðveldar þeim að stækka við sig.
Næst komu hjón utan af landi sem eiga fjögur börn. Þau keyptu miðann sinn í Hagkaupum í Skeifunni. Hjónin hafa alltaf náð að standa í skilum en bæði þurft að vera í fleiri en einni vinnu til að ná endum saman. Þau hafa verið í mikilli fjárhagslegri endurskipulagningu að undanförnu ári og hafa verið að greiða niður lán og yfirdrátt.
Vinningurinn kom þeim skemmtilega á óvart og þau voru mjög ánægð að fleiri en þau skyldu njóta þessa stóra Lottóvinnings. Þau ætla að geyma vinningsupphæðina og nota sem varasjóð. Fjölskyldan ætlar þó að leyfa sér að fara til útlanda í sumar. Það hefur hún ekki leyft sér í mörg ár.
Þriðji vinningshafinn var eldri maður sem keypti miðann sinn í Skalla við Vesturlandsveg á laugardaginn. Hann ætlaði að láta þrífa bílinn í þvottastöð þar nálægt en vegna þess hversu löng röðin var þá ákvað hann að skella sér í Skalla og kaupa sér samloku og einn Lottómiða með í leiðinni. Það var svo sannarlega ferð til fjár því á miðann vann hann 10,8 milljónir. Þær koma sér mjög vel því hann hefur lent í miklum greiðsluerfiðleikum eftir að kreppan skall á.
Fjórðu vinningshafarnir komu svo í lok dagsins en það eru hjón af Suðurlandi sem eiga tvö börn. Hjónin trúðu því varla þau hefðu unnið stóran vinning í Lottó og kemur vinningurinn sér afar vel fyrir þau líkt og aðra vinningshafa helgarinnar.
Íslensk getspá óskar öllum vinningshöfunum til hamingju. Enn hefur heppinn miðaeigandi sem var með fjórar réttar tölur og bónustöluna í Víkingalottóinu þann 10. febrúar, með vinning að upphæð 4.150.160 kr., ekki gefið sig fram. Sá miði var seldur í Ríkinu við Snorrabraut í Reykjavík.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 22. janúar 2010, Innlent Unnu 44,6 milljónir í Víkingalottói
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Innlent Tveir unnu yfir 30 milljónir í Lottó
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Gleðifréttir á sunnudagsmorgun
- Miðvikudagur, 11. nóvember 2009, Innlent Íslendingur vann 107 milljónir
- Miðvikudagur, 6. maí 2009, Innlent Vinningshafar koma í leitirnar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































