Mælir með aðildarviðræðum

Štefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins.
Štefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Reuters

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti á fundi sínum í dag, að mæla með því að aðildarviðræður verði hafnar við Ísland og segir landið almennt vel undir slíka aðild búið. Štefan Füle, nýr stækkunarstjóri Evrópusambandsins hefur boðað blaðamannafund nú á hádegi þar sem þetta verður tilkynnt formlega.

Bloomberg fréttastofan vitnar í skýrslu, sem framkvæmdastjórnin samþykkti í dag, þar sem segir að Ísland fylgi sameiginlegum gildum Evrópusambandsins, svo sem um lýðræði, mannréttindi og virðingu fyrir lögum.  Hins vegar er í skýrslunni einnig fjallað um ýmislegt sem gæti valdið erfiðleikum í aðildarviðræðum.  

Ísland er í heild vel búið undir að axla skyldur aðildar á flestum sviðum," segir í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar, samkvæmt frétt þýsku fréttastofunnar DPA. Hins vegar sé ljóst að Íslendingar þurfi að laga löggjöf sína að löggjöf Evrópusambandsins á ýmsum sviðum, einkum varðandi sjávarútveg, landbúnað, byggða- og þróunarmál,  umhverfismál, frjálst flæði fjármagns og fjármálastarfsemi.

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins þurfa að samþykkja tillögu framkvæmdastjórnarinnar áður en aðildarviðræður geta hafist við Ísland. 

Skýrsla framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert