Fréttaskýring: Ókyrrð í lofti vegna deilu um launakjör
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Mikið ber á milli í kjaradeilu flugumferðarstjóra við Samtök atvinnulífsins sem fara með samningsumboð fyrir opinberu hlutfélögin Flugstoðir og Keflavíkurflugvöll.
Deiluaðilar gefa ekki upp kröfur sínar eða móttilboð. Ástæðan er sú að þar sem deilan er hjá ríkissáttasemjara ríkir trúnaður um þær upplýsingar. Það er þó hægt að geta örlítið í eyðurnar með því að lesa í það sem forsvarsmenn flugumferðastjóra og formaður samninganefndar SA gátu þó sagt, í samtölum við Morgunblaðið.
Flugumferðarstjórar benda m.a. á að um tugur félagsmanna þeirra hefur farið til starfa í útlöndum og að í heiminum sé skortur á flugumferðarstjórum. Af hálfu SA er bent á að gerð sé krafa um að félög í opinberri eigu spari fjármuni. Deilan virðist í hnút og leysist hún ekki kemur til annars verkfalls flugumferðarstjóra á innan við tveimur árum.
Hógværar kröfur
Ottó Einarsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF), sagði að launakröfurnar væru hógværar. Deilan snerist að mestu um ákveðnar skipulagsbreytingar, s.s. breytingar á yfirvinnugreiðslum. Aðspurður játti Ottó því að viðsemjendur hefðu bent á að ástandið í efnahagsmálum væri með þeim hætti að nú væri ekki rétti tíminn til að sækja launahækkanir. Þetta væri þó yfirleitt viðkvæðið í öllum samningum.Ottó benti á að tekjur ríkisins af flugumferð kæmu að mestu frá erlendum aðilum. „Við erum eins og fiskurinn í sjónum. Tekjurnar koma frá útlöndum og launahækkun kostar ríkið ekki neitt,“ sagði hann.
Formaður samninganefndar flugumferðarstjóra er Loftur Jóhannsson, sem var formaður félagsins um árabil. Líkt og Ottó þá benti Loftur á að tekjurnar sem ríkið fengi af störfum flugumferðarstjóra kæmu að mestu frá útlöndum. Frá því gjaldmiðilinn hrundi hefðu tekjur Flugstoða og Keflavíkurflugvallar, reiknaðar í erlendum gjaldeyri, dregist mjög saman. Í þessu fælist í raun afsláttur til flugfélaga. „Það datt engum í hug að lækka verðið á fisknum eða álinu þó að kostnaður hér á landi hefði lækkað,“ sagði hann.
Rukka fyrir kostnaði
Málið er þó ekki endilega svo einfalt að hægt sé að hækka laun flugumferðarstjóra og rukka síðan meira fyrir flug um íslenska flugstjórnarsvæðið.Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugumferðarsviðs Flugstoða, benti á að samkvæmt samningi um alþjóðlega flugleiðsögu gætu Íslendingar aðeins rukkað fyrir þann kostnað sem félli til vegna flugs um íslenska svæðið. Ríkisendurskoðun og alþjóðlegir endurskoðendur færu yfir reikningana og hefðu gjöld verið innheimt umfram kostnað yrðu gjöld lækkuð á móti síðar. Jafnvel þótt sá kostnaður sem hlytist af kauphækkun flugumferðarstjóra fengist samþykktur fyrir alþjóða flugþjónustuna, yrði að líta til þess að um helmingur flugumferðarstjóra starfaði við innanlandsflug eða við flugturna. Stór hluti af þeim kostnaði væri greiddur beint úr ríkissjóð og af flugfélögum sem fljúgja um íslenska flugvelli.




































