Börn send fyrr heim úr skóla

Þungfært er víða um land
Þungfært er víða um land mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Lögreglan í Borgarnesi segir að fólk ætti ekki að vera á ferðinni að óþörfu þar sem lítið þurfi til að allt verði ófært. Skólabörn í Varmalandi í Borgarfirði eru send fyrr heim í dag þar sem veðurútlitið er slæmt á þessum slóðum. Eitthvað er byrjað bæta í vind í Borgarfirðinum.

Ökumaður sem var á ferð í Borgarfirðinum áðan sagði að lítið skyggni væri og oft erfitt að greina stikur við þjóðveginn í Norðurárdal.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert