Ekki verið að hóta starfsmönnum
Samtök lánþega hafa sent frá sér yfirlýsingu sem Guðmundur Andri Skúlason, talsmaður samtakanna ritar undir. Þar kemur fram að það sé rangt hjá formanni Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja að Samtök lánþega séu að hóta starfsmönnum fjármálafyrirtækja.
„Vegna yfirlýsinga frá Friðbert Traustasyni, formanns Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, um meinta hótun Samtaka lánþega vilja Samtök lánþega koma eftirfarandi á framfæri.
Það er alrangt og mikil mistúlkun hjá Friðbert að hér sé um að ræða hótun um að lögsækja almenna starfsmenn fjármálafyrirtækja. Hér er um að ræða ábendingu til starfsmanna um að kynna sér ítarlega réttindi sín og skyldur.
Það er einnig alrangt að fram komi í téðu bréfi til starfsmanna fjármálafyrirtækja, að verið sé að velta ábyrgð á efnahagshruni og gengisfalli yfir á almenna starfsmenn.
Samtök lánþega eru að benda starfsmönnum á að vera gagnrýnin á öll þau úrræði sem yfirmenn og eigendur fjármálastofnanna leggja fyrir viðskiptavini fyrir milligöngu starfsmanna. Feli úrræði í sér gjörninga sem orka tvímælis þá er vinnuveitanda í lófa lagið að vísa ábyrgð á hendur starfsmanni.
Undirritaður sat sem talsmaður Samtaka lánþega, góðan fund með Friðbert Traustasyni í gær, 23. febrúar, hvar fram kom að við erum í öllum meginatriðum sammála um ábyrgð þeirra sem ollu því hruni sem orðið hefur á íslensku efnahagskerfi. Vera kann að við séum ósammála um framsetningu þess bréfs sem Samtök lánþega sendu frá sér til Starfsmanna fjármálafyrirtækja, en það sem upp úr stendur er að starfsmenn fjármálafyrirtækja hafa skýlausan rétt til að neita að framkvæma skipanir sem orka tvímælis.
Einnig hafa starfsmenn fjármálafyrirtækja fullan rétt til þess að neita að bjóða upp á úrræði sem telja má þess eðlis að viðskiptavinur tapi réttindum eða verði fyrir óþarfa kostnaði.
Að lokum vilja Samtök lánþega hvetja Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja til að taka stöðu með sjálfum sér og vinna þannig að bættum hag almennings. Liður í því er að hvetja Friðbert Traustason sem fyrirsvarsmann Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, til að vara félagsmenn sína við og hvetja þá til að taka ekki þátt í aðför að samborgurum sínum gegn eigin sannfæringu."
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Innlent Ábyrgðin ekki bankafólks
- Sunnudagur, 27. júní 2010, Innlent Funda um dómana
- Miðvikudagur, 2. júní 2010, Innlent Vilja sniðganga úrræði félagsmálaráðherra
- Mánudagur, 12. október 2009, Innlent Ræst úr atvinnuhorfum
- Mánudagur, 21. júní 2010, Innlent Ráðleggja lánþegum að greiða ekki
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































