Hagþenkir tilnefnir höfunda
Hagþenkir hefur tilnefnt tíu höfunda og rit þeirra til viðurkenningar Hagþenkis 2009. Hagþenkir/Ingólfur Júlíusson
Hagþenkir hefur tilnefnt tíu höfunda og rit þeirra til viðurkenningar Hagþenkis 2009. Tilkynnt verður um miðjan mars hvaða höfundur hlýtur viðurkenningu við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni.
Eftirfarandi höfundar og rit eru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis 2009:
Aðalsteinn Ingólfsson fyrir bókina Ásgerður Búadóttir: Veftir.
Árni Heimir Ingólfsson fyrir bókina Jón Leifs – Líf í tónum.
Guðrún Ása Grímsdóttir fyrir Ættartölusafnrit Séra Þórðar Jónssonar í Hítardal. I - II.
Guðjón Ármann Eyjólfsson fyrir Vestmannaeyjar – Ferðafélag Íslands árbókFerðafélags Íslands 2009.
Gunnar Harðarson fyrir bókina Blindramminn á bak við söguna.
Helgi Björnsson fyrir bókina Jöklar á Íslandi.
Hugrún Ösp Reynisdóttir fyrir bókina Saga viðskiptaráðuneytisins 1939-1994. Frá höftum til viðskiptafrelsis.
Pétur Gunnarsson fyrir bækurnar ÞÞ – Í forheimskunar landi og ÞÞ í fátæktarlandi.
Sigrún Sigurðardóttir fyrir bókina Afturgöngur og afskipti af sannleikanum.
Sæunn Kjartansdóttir fyrir bókina Árin sem enginn man.
Í tilkynningu segir að Hagþenkir hafi frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. „Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að auk Viðurkenningarinnar sjálfrar kynnir Viðurkenningarráðið lista tíu framúrskarandi fræðirita og námsgagna sem koma til greina við veitingu Viðurkenningarinnar.
Viðurkenningarráð Hagþenkis ákveður tilnefningar og velur þann sem hlýtur viðurkenninguna. Ráðið er skipað fimm félagsmönnum Hagþenkis af ólíkum fræðasviðum og hafa þeir fundað reglulega síðan um miðjan október.
Viðurkenning Hagþenkis telst til virtustu og veglegustu verðlauna sem fræðimönnum og höfundum fræðilegra rita fyrir skóla og almenning getur hlotnast. Veiting hennar hefur oft vakið athygli en sjaldan deilur.
Öll fræðirit sem koma út á Íslandi koma til greina við veitingu viðurkenningarinnar óháð útgefanda eða tilnefningum. Verðlaunaupphæðin er kr. 750.000 sem er sama upphæð og Félag íslenskra bókaútgefenda veitir til íslensku bókmenntaverðlaunanna í hvorum flokki fyrir sig.“
Í viðurkenningarráði eru: Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur og formaður ráðsins, Ingólfur V. Gíslason félagsfræðingur, Jónína Vala Kristinsdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur, Kristín Unnsteinsdóttir uppeldis- og kennslufræðingur og Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur og ljósmyndari. Verkefnastjóri ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir.




































