Ný stjórn hjá kvikmyndagerðarmönnum
Ný stjórn hefur verið kjörin í Félagi kvikmyndagerðarmanna. Hana skipa nú Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður, Anton Máni Svansson varaformaður, Guðbergur Davíðsson gjaldkeri, Anna Þóra Steinþórsdóttir ritari, Sigurbjörn Búi Baldvinsson, Júlía Embla Katrínardóttir og Arnar Einarsson meðstjórnendur og tveir varamenn Guðmundur Einarsson og Stefanía Thors.
Tvær ályktanir voru samþykktar á aðalfundinum:
„Ályktun aðalfundar FK ályktar um Ríkisútvarpið
Ríkisútvarpið er ein af mikilvægustu menningarstofnunum Íslendinga. Starfsemi RÚV hefur áhrif á velgengni og vöxt kvikmyndagerðar á Íslandi. Þess vegna er það hluti samningsins milli Menningar- og menntamálaráðuneytisins og RÚV um útvarp í almannaþágu að RÚV skuli „styrkja og efla“ kvikmyndagerð með kaupum á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum frá sjálfstæðum framleiðendum. Ákvörðun yfirmanna RÚV um að skera stórlega niður þennan þátt starfseminnar, sem er mjög lítill fyrir, er aðför að tilvistarrétti stofnunarinnar. Síaukin áhersla á RÚV sem fyrirtæki í baráttu á auglýsingamarkaði í tíð núverandi stjórnenda vinnur gegn mikilvægum skyldum RÚV í menningarlífi allrar þjóðarinnar.
Ályktun v. niðurskurðar hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Aðalfundur Félags Kvikmyndagerðarmanna mótmælir niðurskurði fjárveitinga til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Margra ára uppbyggingarstarf í kvikmyndaiðnaði verður eyðilagt og atvinnuleysi blasir við mörgum kvikmyndagerðarmönnum.
Það er öllum ljóst að víða verður að skera niður útgjöld í núverandi ástandi og kvikmyndagerðarmenn skorast ekki undan í þeim efnum. En þeir krefjast þess að slíkur niðurskurður verði gerður á skynsamlegan máta og ekki vegið að einni grein langt umfram aðrar eins og raunin er á þessum fjárlögum. Ljóst er að þessi niðurskurður mun bitna á sjálfstæðum framleiðendum og einstaklingum sem starfa við kvikmyndagerð. Jafnframt mun þetta leiða til tekjumissis fyrir fleiri starfsgreinar og ekki hvað síst ríkissjóðs þar sem sýnt er að fjárveitingar til kvikmyndagerðar skila sér í heildina margfalt til baka m.a. með skatttekjum. Hér er dapurlegt dæmi um að verið sé að kasta krónu fyrir aura."
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Fyrsti kvenformaðurinn í Fáki
- Mánudagur, 28. febrúar 2011, Innlent Ekki verði hróflað við áfengiskaupaaldri
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Nýr formaður Borgarahreyfingarinnar
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Innlent Margrét kalli til varamann
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































