Íslendingar á skjálftasvæðinu

Nýja varðskipið Þór var sjósett fyrir nokkru í Síle. stækka

Nýja varðskipið Þór var sjósett fyrir nokkru í Síle. mbl.is

Tveir Íslendingar og fimm Danir eru á vegum Landhelgisgæslunnar í borginni Concepcion, ekki langt frá þar sem skjálftinn stóri reið yfir í Síle. Tveir Íslendingar eru þar einnig á vegum Ísfélags Vestmannaeyja. Einn Íslendingur er í Valdivia á vegum Fram Foods hf.

Fréttin síðast uppfærð kl. 12.55

Stjórnvöld í Síle hafa greint frá því að 64 hafi látist vegna jarðskjálftanna í nótt og morgun. Gefnar hafa verið út flóðbylgjuviðvaranir víða við Kyrrahaf, m.a. í Nýja Sjálandi vegna austurstranda norður- og suðureyjanna og Chatham eyja. 

Áströlsk og japönsk stjórnvöld hafa einnig varað við flóðbylgjuhættu. Í morgun var gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna Mið- og Suður-Ameríku, Suðurskautslandsins og eyja í Frönsku Pólynesíu. 

Óskar eftir upplýsingum um Íslendinga

Utanríkisráðuneytið óskar eftir að frétta af Íslendingum sem staddir eru á jarðskjálftasvæðinu. Pétur Ásgeirsson skrifstofustjóri óskaði eftir því að fólk með upplýsingar um Íslendinga þar hringi í síma ráðuneytisins, 545 9900, en þar er hægt að tengjast neyðarvakt ráðuneytisins.

Einn Íslendingur er í borginni Valdivia, um 700 km sunnan við Concepcíón, á vesturströnd Síle. Hann er starfsmaður Fram Foods hf. sem er með starfsemi á svæðinu. Halldór Þórarinsson, stjórnarformaður Fram Foods, sagði að reynt hafi verið að ná sambandi við manninn í morgun en það ekki tekist. 

Að sögn Georgs Lárussonar, forstjóra LHG, hefur ekki náðst í starfsmenn gæslunnar enn enda liggur símasamband að mestu niðri við landið. Stefán B. Friðriksson, forstjóri Ísfélags Vestmannaeyja hf., sagði einnig að ekki hafi náðst í þeirra fólk á svæðinu.

Nýja varðskipið Þór og tvö ný fjölveiðiskip Ísfélags Vestmannaeyja eru í smíðum í ASMAR skipasmíðastöð sjóhersins í Talcahuano í Síle, sem er nálægt upptökum stóru jarðskjálftanna í nótt. Varðskipið er í slipp og skip Ísfélagsins enn í smíðum á landi.

Stefán hjá Ísfélaginu sagði að í Síle séu hjón á þeirra vegum, maðurinn hefur eftirlit með smíði tveggja skipa félagsins. Þau búa rétt hjá skipasmíðastöðinni í Talcahuano. Stefnt var að því að sjósetja annað skip Ísfélagsins í vor en hitt er miklu styttra á veg komið.

Óttast er að ef hafnarbylgja skellur á landinu geti mikið tjón orðið. 

Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HBGranda og ræðismaður Síle, kvaðst hafa reynt að ná sambandi við sendiráðið í Osló í morgun en það ekki tekist.

Eggert sagði að HBGrandi eigi hlut í Friosur sem er með starfsemi á vesturströnd Síle. Hluti af útgerð Friosur er í grennd við borgina Concepción. Tveir Íslendingar vinna hjá Friosur en þeir eru með bækistöðvar annars staðar. 

Um 50 Sílebúar eru búsettir hér á landi.

Utanríkisráðuneytið hefur reynt að ná sambandi við ræðismann Íslands í Síle en ekki tekist. Sendiráði Íslands í Washington verður falið að hafa samband við sendiráð Síle þar í borg til að afla upplýsinga. 

Bílar krömdust undir byggingu í Santiago sem hrundi í jarðskjálftanum.

Bílar krömdust undir byggingu í Santiago sem hrundi í jarðskjálftanum. Reuters

Kortið sýnir hvernig mögulegar flóðbylgjur geta breiðst út um Kyrrahafið frá upptökum jarðskjálftans í Chile.

Kortið sýnir hvernig mögulegar flóðbylgjur geta breiðst út um Kyrrahafið frá upptökum jarðskjálftans í Chile. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í Evróvisjón spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI
EINBÝLISHÚS ÖLFUSI Til sölu 170 fm einbýli. Hús 120 ...
KÍNVERSKAR SILKIHÆNUR OG ÝMISLEGT FL....
Eigum einungis eftir 2 stk af þessum frábæru fuglum. Báðar hvítar. Seljast á 10 ...
UKELELE
Ukulele í úrvali. Verð frá 5.900. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27. S. 552 2125. www....
Til sölu vespa
Til sölu mjög vel með farin Znen 50 QT 11C tvígengis vespa. Ekin aðeins 3.200 ...
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...