Tilnefningar til blaðamannaverðlauna árið 2009

Ein mynda Rax sem tilnefndar eru í flokkinum yfir bestu umfjallanir ársins. stækka

Ein mynda Rax sem tilnefndar eru í flokkinum yfir bestu umfjallanir ársins. mbl.is/Rax

Magnús Halldórsson og Ragnar Axelsson, ásamt  Ágústi Inga Jónssyni, Morgunblaðinu, eru tilnefndir til blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands í flokkinum yfir bestu umfjallanir ársins 2009 fyrir skilmerkilega, myndræna og upplýsandi umfjöllun sem varpaði ljósi á erfitt ástand  á fasteignamarkaði  á Íslandi. Jafnframt er teiknarinn Halldór tilnefndur fyrir teikningar sínar í Morgunblaðinu.

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands fyrir árið 2009 voru kynntar í kvöld en árleg ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands með myndum ársins 2009 verður haldin 6. mars í Gerðarsafni í Kópavogi kl. 15.  Við sama tækifæri verða afhent verðlaun vegna Blaðamannaverðlauna ársins, Rannsóknarblaðamennsku ársins og Umfjöllunar ársins.

 Rannsóknarlaðamennska ársins 2009:

Guðný Helga Herbertsdóttir, Stöð 2, fyrir fjölmargar áhugaverðar fréttir um skattalega meðferð mála í tengslum við fjármálakreppuna og fyrir fjölbreyttar og upplýsandi fréttir um hrunið hér heima og erlendis.

Ingi F. Vilhjálmsson, DV, fyrir skrif um kúlulán og fjölmargar afhjúpandi fréttir um viðskiptahætti auðmanna og stórfyrirtækja í aðdraganda og eftirmála hrunsins.

Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu, áður Morgunblaðinu, fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umsvifamikil viðskipti stórfyrirtækja.

 Besta umfjöllun ársins 2009:

Magnús Halldórsson og Ragnar Axelsson, ásamt Ágústi Inga Jónssyni, Morgunblaðinu, fyrir skilmerkilega, myndræna og upplýsandi umfjöllun sem varpaði ljósi á erfitt ástand  á fasteignamarkaði  á Íslandi.

 Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir skilmerkilegan og ítarlegan fréttaskýringarflokk um endurskoðun stjórnarskrárinnar.

 Blaðamannaverðlaun ársins 2009:

Gunnar Karlsson, Fréttablaðinu fyrir „Spottið“ og Halldór Baldursson, Morgunblaðinu, fyrir „Halldór“, áhrifamiklar teikningar þar sem brennandi samfélagsmál eru sett í hárbeitt en um leið skoplegt ljós.

Jóhann Hauksson, DV, fyrir leiðandi umfjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál.

Þóra Arnórsdóttir, Kastljósi RÚV, fyrir mjög vel undirbúin og útfærð viðtöl við innlenda og erlenda sérfræðinga um ýmis málefni sem hátt bar í þjóðfélagsumræðunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í Evróvisjón spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Útilegudót óskast
Óska eftir að kaupa GAS-hitara, kælibox fyrir 220V/12V ekki mjög lítið og fleira...
Hermannaúlpa
Hermannaúlpa til sölu, 2 stk. L- XL. Upplýsingar í síma: 8935005...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði â...
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
 
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...