Vaknaði við vondan draum
Eftir Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur ingibjorgrosa@mbl.is
Harpa Elín Haraldsdóttir segir að ekki sé hægt að bera jarðskjálftana í Chile saman við Suðurlandsskjálftana sumarið 2000. Hún býr í Santiago og vaknaði við vondan draum þegar risaskjálftinn reið yfir aðfaranótt laugardags.
Harpa hefur búið í Santiago frá því í júní á síðasta ári þegar hún hóf störf fyrir orkufyrirtækið GeoThermHydro. Þar áður hafði Harpa búið í Niquaraqua í nokkur ár. Mjög slæmt símasamband er við Chile eftir skjálftann en með hjálp Internetsins gat blaðamaður komist í samband við Hörpu og spurt frétta.
Hvað ertu að gera þarna úti í Chile?
„Við erum hér fimm Íslendingar á vegum GeoThermHydro, ég og hjónin Bjarni Richter og Rósa Jónsdóttir ásamt sonum þeirra, Sigurði Ými og Jóni Hákoni. GeoThermHydro sinnir þjónustu varðandi fjölbreyttari orkugjafa í Suður- og Mið-Ameríku.
Og hvernig var að upplifa svona risaskjálfta?
„Þegar skjálftinn reið yfir var hánótt og ég steinsofandi heima hjá mér, í íbúð á 9. hæð. Ég rumskaði við nettan hristing sem þó magnaðist fljótt og það lék hér allt á reiðiskjálfi. Ég smokraði mér niður á gólf og hlustaði á hvernig allt lauslegt hrundi niður úr skápum. Það var í raun magnað að fylgjast með því hvernig húsið sveiflaðist.
Aldrei hef ég upplifað að sjá heilt hús sveigjast til líkt og strá í vindi. Manni fannst skjálftinn standa ótrúlega lengi yfir og ég man að á ákveðnum tímapunkti hugsaði ég, pollróleg, um þann möguleika að húsið hryndi yfir mig og velti því fyrir mér hvernig ég ætlaði að redda mér út úr því. Mér finnst eiginlega ótrúlegast hvað maður var eitthvað rólegur í þessum aðstæðum.
Hvernig fór þitt heimili út úr skjálftanum?
„Rafmagnið fór auðvitað svo það var svartamyrkur og afar óþægilegt að vita í raun ekki hverjar skemmdirnar á húsinu væru. Ég fór niður í anddyri til að athuga hvort dyravörðurinn væri með ferðaútvarp eða eitthvað slíkt. Þá hafði þegar safnast þar töluverður fjöldi fólks, sumir afar skelfdir, aðrir rólegri en öllum mjög brugðið.
Það var kaos en blessunarlega er hverfið mitt vel byggt og því myndaðist ekki algjört panikk. Margir vildu ekki snúa aftur til íbúða sinna og sváfu í anddyrinu en ég fór upp aftur og komst að
því með því að lýsa í kringum mig með fartölvunni að íbúðin mín var bara í nokkuð góðu ástandi.“
Hvernig gekk þér að láta vita af þér til Íslands?
Það gekk nú brösuglega. Ég reyndi að hringja heim strax á laugardagsmorgun en það gekk auðvitað ekki. Þá sendi ég nokkur SMS sem mér skilst að séu enn á leiðinni. Þegar rafmagnið kom loks gat ég komist á Internetið og sent skilaboð heim.
Fjölskyldan var auðvitað áhyggjufull og í pósthólfinu mínu biðu fleiri tugir skilaboða frá ættingjum og vinum alls staðar að úr heiminum.“
Veistu um afdrif vina þinna þarna í Chile?
„Sem betur fer er ég búin að ná í allflesta vini hér og þeir og fjölskyldur þeirra eru óhult. Ég vissi af nokkrum sem voru á ferðalagi nálægt upptökunum og það var ótrúlega gott að heyra frá þeim í gærkvöldi, heilum á húfi.“
Hvernig er ástandið í borginni?
„Chile er jarðskjálftaland og hér hafa orðið stórir skjálftar nokkrum sinnum svo þeir eru vel undirbúnir. Það sést vel í þessum nýrri hverfum, eins og því sem ég bý í. Húsin eru flest svo til heil, það eru helst brotnar rúður og sprungur. Sömu sögu er því miður ekki að hægt að segja af eldri hverfum og t.d. miðbæ Santiago. Það er hræðilega sorglegt að sjá myndir þaðan þar sem heilu húsin hafa hrunið. Flugvöllurinn er líka illa farinn og ekki búist við að hann komist í gagnið næstu daga.“
En hvernig taka íbúarnir á ástandinu?
„Það er alltaf mikil ringulreið þegar fólk er örvæntingarfullt og hrætt. Hér er byrjað að ráðast inn í verslanir og láta greipar sópa, matvöruverslanir eru tæmdar og herinn hefur reynt að aðstoða fólk við að fá nauðsynjar en það má einnig sjá einstaklinga með plasmasjónvörp undir handleggnum.
Fólk er bara almennt í sjokki. Mörg hverfi eru enn án vatns og rafmagns og margir geta ekki snúið aftur í íbúðirnar sínar. Það versta er líklega yfirstaðið og hér er strax hafið uppbyggingarstarf. Chilebúar eru smám saman að átta sig á harmleiknum og skipuleggja endurreisn. En ástandið er auðvitað verra nær upptökum skjálftans.
Ætlarðu að búa þarna áfram eða langar þig að koma heim?
„Ég held ótrauð áfram. Hér er mikið verk framundan, jafnt í vinnu sem og samfélaginu hér. Hvað varðar starf GeoThermHydro í Chile þá verður að sjá aðeins til hvernig það þróast en grundvallarþörfin fyrir fjölbreyttari framleiðslu rafmagns hefur ekkert breyst við þetta, nema síður sé.“
Hefurðu áður upplifað jarðskjálfta?
„Ég hef fundið einhverja hristinga heima, já. Man sérstaklega eftir
Suðurlandsskjálftunum árið 2000, en það er ekkert hægt að bera þá saman við þetta.“





































