Sjallinn enn lokaður

Sjallinn. stækka

Sjallinn. mbl.is/Skapti

Slökkviliðsstjórinn á Akureyri og byggingafulltrúi Akureyrar segja að Sjallinn sé enn lokaður og að staðurinn verði lokaður þar til að öllum öryggiskröfum til veitingarekstursins verður fullnægt. Greint var frá því á mbl.is á laugardag að staðurinn hafi verið opnaður á ný, samkvæmt upplýsingum frá skemmtanastjóra Sjallans.

„Í ljósi fréttar Mbl. þ. 27.2 s.l. um að búið sé að opna Sjallann á Akureyri á ný vilja slökkviliðstjórinn og byggingarfulltrúinn á Akureyri árétta að Sjallinn á Akureyri er lokaður og verður lokaður þar til að öllum öryggiskröfum til veitingarekstursins verður fullnægt. Um tímabundna opnun var að ræða í hluta hússins s.l. laugardagskvöld.

Iðnaðarmenn eru við störf í húsinu við úrbætur sem ekki er lokið. Embætti byggingafulltrúa hafa ekki borist endurskoðaðar aðalteikningar af veitingastaðnum en gert er ráð fyrir að þeim verði skilað inn fyrir afgreiðslufund á miðvikudag. Í framhaldinu verður gerð úttekt á staðnum á ný og ef í ljós kemur að staðurinn uppfyllir kröfur byggingarreglugerðar þ.m.t. öryggismálum getur veitingareksturinn hafist á ný," segir í tilkynningu frá slökkviliðsstjóra og byggingarfulltrúa Akureyrar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »
Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.

Nálgast 30.000 undirskriftir

15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörinn nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kílóum en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurland

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa upp á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Börnin uppgötva undraheima Legó

Börnin skemmtu sér hið besta við að búa til alls kyns byggingar úr kubbunum.
14:05 Gríðarleg umferð hefur verið í ráðhúsi Reykjavíkurborgar um helgina en þar er sýningin Undraheimar Legó sett upp. Yngstu kynslóðinni gefst þar kostur til að gleyma sér framkvæmdum með fjölmarga Legó-kubba. Meira »

Evrópusambandið kynnir sig sjálft

Fánar Evrópusambandsins fyrir utan höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar sambandsins í Brussel.
13:35 Sérstök upplýsingaskrifstofa um Evrópumál, sem fengið hefur heitið Evrópustofa, var opnuð við Suðurgötu í Reykjavík í síðasta mánuði en markmið hennar er að miðla hlutlægum upplýsingum til Íslendinga um Evrópusambandið og kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í sambandið. Meira »

Vilja efla siðferði í stjórnmálum

Þingmenn Hreyfingarinnar standa að Breiðfylkingunni.
12:53 Stofnfundur Breiðfylkingarinnar hófst á hádegi en að henni standa Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og einstaklingar úr stjórnlagaráði. Í kjarnastefnu fylkingarinnar segir að leysa verði skuldavanda heimilanna og efla siðferði í stjórnmálum. Meira »

SUF vill draga ESB-umsóknina til baka

13:34 Samþykkt var á 37. þingi Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í morgun að aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði hætt og umsókn Íslands um aðild að sambandinu dregin til baka. Meira »

Enginn með einkarétt á Samstöðu

Lilja Mósesdóttir.
12:44 Lilja Mósesdóttir, formaður stjórnmálaflokksins Samstöðu, segir að átta félög hafi verið skráð í fyrirtækjaskrá undir nafninu Samstaða. Eitt af þeim var stjórnmálaafl á landsvísu sem breytti nafni sínu til að Samstaða Lilju gæti fengið nafn sitt. Meira »

Yrði ōðruvísi biskup myndskeið

biskupsframbod gunnar
11:45 MBL Sjónvarp ræðir á næstu vikum við frambjóðendur í biskupskjörinu sem fer fram á næstunni. Þannig gefst almenningi tækifæri á að kynnast þeim sem eru í framboði þó kosningaréttur sé ekki almennur. Séra Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju ríður á vaðið. Meira »

Lætur hátt í fangaklefa

10:51 Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð að samkvæmi við Smiðjustíg á sjöunda tímanum í morgun þar sem einn gestanna var með uppsteit. Að sögn lögreglu var maðurinn óviðráðanlegur af bræði og réðst hann á lögreglumenn sem hugðust vísa honum úr samkvæminu. Hann var handtekinn og er í fangaklefa, þar sem hann lætur hátt, að sögn lögreglu. Meira »

Leikstjórinn kom inn sem ljón

Skot úr sýningunni um Galdrakarlinn í Oz.
10:09 Leikarinn Halldór Gylfason var fluttur á slysadeild í gær þegar hann slasaðist við sýningu á Galdrakarlinum í Oz. Lúga opnaðist fyrir mistök á sviðinu þegar Halldór gekk um það og datt hann niður um hana. Tjaldið var snögglega dregið fyrir og varð úr að leikstjóri sýningarinnar kláraði sýninguna. Meira »

Handteknir fyrir að keyra á mann

Ekið var á manninn í Austurstræti.
11:03 Tveir menn voru handteknir á heimili annars þeirra á sjötta tímanum í morgun vegna gruns um að annar hvor þeirra hefði ekið á mann í Austurstræti á fimmta tímanum. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar líður á daginn. Meira »

Martröð í matarboði myndskeið

Stuttmyndahornið: Martröð í matarboði
10:33 Myndin Takk fyrir mig er fimmta myndin sem MBL Sjónvarp sýnir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndin fjallar um matarboð sem virðist ætla að ganga vel þar til einn gestanna uppgötvar skuggahliðar gestgjafans. Meira »

Fjöruverðlaun eftir viku

Bækur níu kvenna eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna.
09:42 Misritað var í Morgunblaðinu í gær að Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verði afhent í Iðnó í dag, en rétt er að það verður eftir viku, 18. febrúar næstkomandi, en þá verður haldin Góugleði í Iðnó. Gestur verðlaunahátíðarinnar verður rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NOTAÐ&NÝTT
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við Byko. Mikið úrval af fallegum ...
Nuddbekkir : Breiðir fyrir fólk af stærri gerðinni sem og ófrískar.
Nuddbekkur- Sterkur-Fallegur-Endingagóður. 1.92*81cm Tilboð 67.000. Allt á mynd ...
16" Bens álfelgur til sölu. Ótrúlegt verð.
Líta út eins og nýjar. Voru notaðar bara á sumrin fyrir Bens E320 2007. Verð : ...
HREINSA ÞAKRENNUR
Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704, manninn@hot...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Stúkan edda
Félagsstarf
l EDDA 6012020719 III...
Húsnæði óskast

Húsnæði óskast til kaups eða leigu Rót...
Félagsráðgjafi
Sérfræðistörf
Félagsráðgjafi F...