„Villt dýr að féþúfu“ á Vestfjörðum

Refur gæðir sér á eggi. stækka

Refur gæðir sér á eggi. mynd/Jón Jónsson

Melrakkasetur Íslands og Vaxtarsamningur Vestfjarða hafa undirritað styrktarsamning vegna samstarfs í vöruþróun á náttúrulífstengdri ferðaþjónustu í kringum villt dýralíf á Vestfjörðum að því er fram kemur á fréttavef Bæjarins besta. Styrkurinn er veittur til klasaverkefnis „Villt dýr að féþúfu“ sem er samstarfsverkefni milli Melrakkaseturs Íslands, Náttúrustofu Vestfjarða, Rannsókna- og fræðaseturs HÍ á Vestfjörðum, Vesturferða og Borea Adventures.

Í tilkynningu Melrakkaseturs Íslands segir að á Vestfjörðum séu „óvenju fjölbreyttir möguleikar fyrir náttúrulífstengda ferðaþjónustu og mikill mannauður, þekking og reynsla sem mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu hennar.“ Refurinn hafi t.a.m. ekki verið tekjulind fyrir þjóðina í næstum hundrað ár, heldur kostað sveitafélög milljónir á ári í langan tíma. „Hugmyndin er að snúa þeirri stefnu við og gera Vestfirðingum kleift að hafa tekjur af tófunni á sjálfbæran hátt enda má kalla refinn einkennisdýr Vestfjarða.“ 

Í tilkynningunni segir ennfremur að ferðaþjónustuaðilar á Vestfjörðum komi flestir að einhverskonar dýralífstengdum málum. „Ekkert annað landsvæði af sömu stærðargráðu hefur jafn auðveldan aðgang að eins mörgum áhugaverðum dýrahópum. Það er því mikilvægt fyrir alla hagsmunaaðila að vekja athygli á þeirri sérstöðu og nýta sér þá þekkingu sem hér er.“

Í tilkynningu Melrakkaseturs kemur einnig fram að samstarfsaðilar á Vestfjörðum og landsvísu, taka þátt í norðurslóðaverkefni um þróun náttúrulífsferðamennsku á norðurslóðum, The Wild North, en það er samnorrænt verkefni. Félagar The Wild North framkvæma grunnrannsóknir og halda námskeið og vinnufundi, sem eru sérstaklega miðuð að þörfum ferðaþjónustufyrirtækja og annarra hagsmunaaðila náttúrulífstengdrar ferðaþjónustu. Þróað verður vottunarkerfi sem nýtist ferðaþjónum í markaðssetningu ferða sinna.

„Þátttaka í The Wild North er mikilvæg fyrir uppbyggingu náttúrulífsferðaþjónustu í fjórðunginum og gerir okkur hæfari til að þróa okkar vöru og þjóna viðskiptavinum okkar. Miklar væntingar eru gerðar til náttúrulífsferðamennsku í dag. Þátttakendur í verkefninu hafa trú á því að aukin verðmætasköpun sé fólgin í því að ná til þeirra fjölmörgu ferðamanna sem skipuleggja ferðir sínar gagngert til að sjá villt dýr og óspillta náttúru.

Þetta er sá efniviður sem flestir hagsmunaaðilar á Vestfjörðum hafa upp á að bjóða til ferðamanna og telst helsta aðdráttarafl svæðisins. Sé rétt að málum staðið og ef fyrir liggur trygg vottun fyrir því að þjónustuaðilar hér stundi ábyrga og sjálfbæra ferðamennsku opnast aðgangur að þessum verðmæta hópi ferðamanna sem hefur lítið skilað sér hingað til þessa. Með því að stuðla að sjálfbærri þróun náttúrulífstengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum má tryggja undirstöður greinarinnar, afkomu þeirra sem í henni vinna og varðveislu náttúruauðlinda til lengri tíma. Styrkurinn mun koma sér mjög vel því nóg eru verkefnin,“ segir á melrakki.is.

Áætlað er að verkefnið taki þrjú ár og er þegar byrjað að gera áætlanir fyrir næsta sumar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í Evróvisjón spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vinnustofa óskast
Óska eftir að taka á leigu 20-50 fm atvinnuhúsnæði fyrir grafíska hönnun og hljó...
Flottur svefnsófi og 2 stólar
Sófinn er úr Microfiber (Alcan Pava) og kostar nýr tæpar 800 þús kr. Stærð sóf...
KEBEK NAMA HEILSÁRSDEKK
Kebek - Nama heilsársdekk Pakkatilboð 4 dekk + vinna 185/55 R 14 kr. ...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...