Fékk nýsköpunarverðlaunin
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru veitt á Bessastöðum í dag. Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Súrefnis- og hjartsláttarnemi og vinningshafinn er Ásgeir Bjarnason sem stundar meistaranám í heilbrigðisverkfræði í Finnlandi en var nemandi við Háskólann í Reykjavík þegar hann vann að verkefninu.
Leiðbeinendur Ásgeirs voru þeir Sigmar Guðbjörnsson og Hákon Óli Guðmundsson hjá Stjörnu-Odda.
Verkefnið fólst í því að hanna frumgerð súrefnismettunar- og hjartsláttarnema sem nota á við dýrarannsóknir og kanna hvaða vandamál koma upp við smíði og prófun á slíkum tækjum. Lokatakmark verkefnisins var að þróa örsmátt og ígræðanlegt mælitæki fyrir tilraunadý þar sem einungis er þörf á smávægilegri aðgerð en hefur þann kost að draga mikið úr áhrifum vegna hegðunar dýrsins. Í þessum fyrsta áfanga verkefnisins var lögð áhersla á finna út hvaða rafeindatæknileg vandamál koma upp við notkun á slíkum mælum og hvernig best er að leysa þau. Ásgeir náði vel þeim markmiðum sem lagt var upp með í verkefni sínu og gott betur en það, því niðurstöður úr verkefni hans eru nær raunverulegtri vöruþróun en lagt var upp með.
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verðlaunin voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996 og eru því nú veitt í fimmtánda sinn. Forseti Íslands veitir verðlaunin árlega. Samtök iðnaðarins gefa verðlaunin í ár. Verðlaunagripirnir eru hannaðir af Ragnheiði Ingunni Ágústsdóttur myndlistarmanni og Sigurði Má Helgasyni hönnuði.
Innlent »
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 17. febrúar 2009, Innlent Nýsköpunarverðlaunin afhent
- Fimmtudagur, 7. maí 2009, Innlent Íslendingar með besta Erasmus verkefnið
- Sunnudagur, 14. júní 2009, Innlent KEA úthlutar 7,6 milljónum króna úr Háskólasjóði
- Miðvikudagur, 1. desember 2010, Innlent Tilnefningar til bókmenntaverðlaunanna kynntar
- Fimmtudagur, 9. desember 2010, Innlent Íslenska, grænir skógar og fræðslustjóri
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































