Háskólanám að verða forréttindi hinna efnameiri

ekki verður boðið upp á sumarnám í Háskóla Íslands í sumar. stækka

ekki verður boðið upp á sumarnám í Háskóla Íslands í sumar. mbl.is/Ómar

„Nú er svo komið að ekki stendur til að hafa lánshæf sumarnámskeið í Háskóla Íslands í sumar, réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta hefur verið afnuminn og horfur á atvinnu fyrir námsmenn, sérstaklega foreldra sem ekki geta unnið nema dagvinnu (á dagvistunartíma) eru mjög litlar.“

Þetta kemur fram í bréfi sem Anna Jóna Heimisdóttir, fyrsta árs nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sendi í dag til ráðherra og þingmann til að vekja athygli á bágri stöðu námsmanna á komandi sumri.

„Ég vildi vekja athygli á þessu,“ segir Anna Jóna, sem fékk í morgun svar frá nemendaskrá HÍ um að enginn sumarnámskeið yrðu í boði næsta sumar. Sjálf hefði hún farið í sumarnám stæði það til boða.

„Námsmenn hafa ekki rétt á bótum og það verður að segjast eins og er að atvinnuhorfur eru ekki góðar, sérstaklega ekki fyrir fólk með börn.“ Anna Jóna bendir á að margir námsmenn séu í sömu stöðu og hún sjálf - eigi þess ekki kost að vinna utan þess tíma sem leikskóli bjóði vistun og er mánaðar sumarfrí leikskóla bætist við sé áhugi vinnuveitenda ekki mikið. „Ég get ekki ímyndað mér að margir vilji ráða svona manneskju í vinnu og ég veit að ég er ekkert ein í þessari stöðu.“

Margir þeirra námsmanna sem hún hefur rætt við hafa miklar áhyggjur Það hafi enda vissulega verulega slæm áhrif á fjárhaginn að verða tekju- og lánalaus í þrjá mánuði. Ástandið veki t.a.m. örvæntingu meðal þeirra námsmanna sem ekki hafa bakland í fjármálum og foreldra sem þurfa að standa í skilum með húsnæðis- og önnur lán. „Fólk er mikið að velta fyrir sér hvað það eigi að gera. Hvort það eigi einfaldlega að sitja heima og betla mat fyrir börnin.“

Sjálf kveðst hún ekki enn vita hvernig hún brúi sumarið. „Ég reyni að sjálfsögðu að sækja um vinnu, en fyrirtæki eru ekki að ráða starfsfólk í sumarafleysingar af sama krafti og áður heldur reyna þau frekar að mæta sumarfríum með öðrum hætti.“

Varla teljist það jafnrétti til náms þegar eingöngu þeir efnameiri og þeir sem hafa efni á þremur tekjulausum mánuðum, geta stundað háskólanám. Háskólinn og stjórnvöld séu bregðast námsmönnum nú, nema gripið verði í taumana og eitthvað gert.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Slímseta á óvenju háu stigi

11:01 „Ríkisstjórnin þorir ekki að deyja. Þess vegna er hún þarna á sínum pólitíska grafarbakka og vonast til að tolla þar eitthvað áfram,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á heimasíðu sinni í dag Meira »
Rauðar rósir eru eftirsóttar um þessar mundir.

Blómleg tíð hjá blómabændum

10:58 „Þetta er frekar mikill annatími hjá blómabændum,“ segir Sveinn A. Sædal, formaður Sambands garðyrkjubænda, en tveir miklir blómasöludagar eru á næstu grösum; Valentínusardagurinn á morgun og konudagurinn næstkomandi sunnudag. Meira »

Ragnar Önundarson: Geir verður sýknaður

Ragnar Önundarson
11:10 „Ísland varð fyrst landa til að verða illa úti í heimskreppunni sem nú varir. Samt er landið nú, aðeins rúmum þremur árum síðar, tekið sem dæmi um hvernig unnt er að takast á við fjármálaáfall án þess að innviðir og velferð fari úr öllum skorðum", segir Ragnar Önundarson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Söfnunarátak ABC barnahjálpar

Isaac götustrákur fær mat frá starfsmanni ABC í Naíróbí.
11:02 Nú stendur yfir söfnunarátak ABC barnahjálpar í samstarfi við grunnskóla landsins. Börn í fjórða, fimmta og sjötta bekk munu ganga í hús með söfnunarbauka frá ABC allt til 8. mars næstkomandi. ABC barnahjálp hvetur landsmenn til þess að taka vel á móti börnum með söfnunarbauka frá félaginu. Meira »

Eldsneytisskattar hækkað um 58% á ári

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
10:34 Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spyr á Facebook-síðu sinni í dag hvort ekki sé tímabært að lækka skattbyrði á eldsneyti og kemur með reikningsdæmi af heimilisbifreið sem ekið er 20 þúsund kílómetra á ári. Meira »

Með fangið fullt af folaldalundum

Bónus
11:06 Lögreglan á Selfossi var kölluð út að Bónus á Selfossi síðdegis á laugardag þar sem karlmaður hafði farið út úr versluninni með fangið fullt af folaldalundum sem hann hafði ekki greitt fyrir. Meira »

Skattheimta hækkar bensínverð

10:46 „Eldsneytisverð er orðið allt of hátt og venjulegt fólk þarf bráðum að leggja bílnum ef ekki verður eitthvað gert til að lækka verðið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

174 milljónir í neyðaraðstoð

Frá Eþíópíu
10:24 Á fjárlögum 2012 er gert ráð fyrir 174 milljón króna framlagi til neyðar- og mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnuverkefna á vegum frjálsra félagasamtaka sem úthlutað er tvisvar á ári, vor og haust. Meira »

Vörður tryggir fasteignir ríkisins

Frá undirritun samningsins. Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs ...
09:53 Tryggingafélagið Vörður gekk nýverið frá samningi við ríkið um brunatryggingar vegna allra fasteigna þess samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en fasteignir ríkisins eru tæplega 1200 talsins. Meira »

Stefán Snær: 100 ára íþróttasaga

Stefán Snær Konráðsson
09:22 „Það var stór dagur, ekki aðeins í íslenskri íþróttasögu heldur í Íslandssögunni allri, þegar framsýnir menn ákváðu að stofna Íþróttasamband Íslands 28. janúar árið 1912," segir Stefán Snær Konráðsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Enginn var í bílnum

Frá Vífilsstaðavatni í morgun.
09:32 Enginn var í bílnum sem fannst í Vífilsstaðavatni um níuleytið í morgun. Lögregla og slökkvilið leita nú af sér allan grun í vatninu og umhverfis það. Meira »

Bíll á kafi í Vífilsstaðavatni

Frá Vífilsstaðavatni í morgun
09:05 Kafarar voru sendir að Vífilsstaðavatni um klukkan níu í morgun, en vegfarandi tilkynnti um bíl í vatninu. Ekki er vitað hvort einhver er inni í bílnum. Meira »

Komið í veg fyrir eðlilega meðferð

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fremst ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Bjarna Benediktssyni samflokksmönnum sínum.
08:41 „Enn og aftur er verið að snúa hlutum á hvolf. Hugmyndin var að rammaáætlun kæmi til Alþingis beint frá undirbúningsnefnd sérfræðinga. Nú ætlar ríkisstjórnin að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi meðhöndli málið með eðlilegum vinnubrögðum þingmála,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Vegir víðast hvar auðir

07:49 Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni en hálkublettir eru hins vegar á nokkrum fáfarnari leiðum. Meira »

28% vilja Vaðlaheiðargöng

Vaðlaheiðargöng.
06:56 Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Meira »

Stærstur hluti tekna af samkeppnismarkaði

08:04 „Íslandspóstur fagnar umræðunni en segist ekki mynda sér skoðun á málinu þar sem einkarétturinn liggi hjá ríkinu en Íslandspóstur framfylgi eingöngu lögum um póstdreifingu,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti vegna umræðu um hvort afnema eigi einkarétt ríkisins á póstdreifingu bréfa að 50 grömmum. Meira »

Sveiflukenndur skíðavetur

Þótt meira hafi snjóað í ár en oft áður skilar það sér ekki í fleiri ...
07:30 Skíðaveturinn hefur ýmist verið skelfilegur eða frábær hjá skíðasvæðum landsins. Í Hlíðarfjalli hafa síðustu helgar verið góðar með fallegu veðri og fjölda fólks að sögn Hólmfríðar Söru Friðjónsdóttur, verkstjóra innanhússtarfsmanna skíðasvæðisins. Meira »

Skilaboðin ekki gefin upp

Sprengjusérfræðingur skoðar kassa sem tengist sprengjunni.
06:30 Lögreglan gefur ekki upp hvaða skilaboðum reynt var að koma á framfæri með sprengingu á Hverfisgötu í lok janúar.  Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp 5 hp 15 hp 25 hp Al...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, uppþvottavélar, ...
BÍLALÍF
Bílalíf bílasala . . . í bílum erum við sterkir! Skráðu bílinn þinn frítt hjá bi...
Til leigu 2-4 m sumarhús
Til leigu í Hvalfirði, 55 km frá Rvík. Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Fjöl...
 
Stúkan gimli
Félagsstarf
l Gimli 6012021319 I°...
Sölumaður óskast
Afgreiðsla/verslun
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...
Efni í skolpútrás

Vestmannaeyjabær Útboð Efni í skolp...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - bifreiðauppboð

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Bæjarhraun...