Blaðamannahátíð á laugardag
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Myndir ársins 2009, verður opnuð laugardaginn 6. mars 2010 í Gerðarsafni í Kópavogi kl 15. Þar verður einnig tilkynnt hvaða blaðamenn hljóta viðurkenningar fyrir Rannsóknarblaðamennsku ársins, Umfjöllun ársins og Blaðamannaverðlaun ársins auk verðlaunaveitinga fyrir myndir ársins.
Á sýningunni eru rúmlega 150 blaðaljósmyndir liðins árs sem valdar hafa verið inn á sýninguna, auk þess sem verðlaun eru veitt fyrir bestu myndirnar í ellefu flokkum. Þeir eru: - Mynd ársins, fréttamynd ársins, íþróttamynd ársins, portrettmynd ársins, tímaritamynd ársins, umhverfismynd ársins, daglegt líf, þjóðlegasta myndin, skoplegasta myndin og myndröð ársins. Einnig verður veitt viðurkenning fyrir besta myndskeiðið á síðasta ári, samkvæmt tilkynningu.Bók með bestu blaðaljósmyndum ársins 2009 kemur út við þetta tækifæri og verður kynnt á sýningunni. Þá opnar á neðri hæð safnsins ljósmyndasýning Þorvaldar Arnar Kristmundssonar, sem hann nefnir Náttúra er vörumerki/Nature is brand.
Þrír eru tilnefndir í hverjum flokki vegna Blaðmannaverðlauna ársins, Umfjöllunar ársins og Rannsóknarblaðamennsku ársins 2009.
Fyrir rannsóknarblaðamennsku eru það: Guðný Helga Herbertsdóttir, Stöð 2, fyrir fjölmargar áhugaverðar fréttir um skattalega meðferð mála í tengslum við fjármálakreppuna og fyrir fjölbreyttar og upplýsandi fréttir um hrunið hér heima og erlendis.
Ingi F. Vilhjálmsson, DV, fyrir skrif um kúlulán og fjölmargar afhjúpandi fréttir um viðskiptahætti auðmanna og stórfyrirtækja í aðdraganda og eftirmála hrunsins.
Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu) fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umsvifamikil viðskipti stórfyrirtækja.
Fyrir bestu umfjöllun ársins: Magnús Halldórsson, Ragnar Axelsson ásamt Ágústi Inga Jónssyni, Morgunblaðinu, fyrir skilmerkilega, myndræna og upplýsandi umfjöllun sem varpaði ljósi á erfitt ástand á fasteignamarkaði á Íslandi.
Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB.
Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir skilmerkilegan og ítarlegan fréttaskýringarflokk um endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Til Blaðamannaverðlauna ársins 2009 eru tilnefndir Gunnar Karlsson, Fréttablaðinu fyrir „Spottið“ og Halldór Baldursson, Morgunblaðinu, fyrir „Halldór“, áhrifamiklar teikningar þar sem brennandi samfélagsmál eru sett í hárbeitt en um leið skoplegt ljós.
Jóhann Hauksson, DV, fyrir leiðandi umfjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál.
Þóra Arnórsdóttir, Kastljósi RÚV, fyrir mjög vel undirbúin og útfærð viðtöl við innlenda og erlenda sérfræðinga um ýmis málefni sem hátt bar í þjóðfélagsumræðunni.
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands stendur í Gerðarsafni til 2. maí.





































