Nýskráningum fækkar um 32%
mbl.is
Alls voru nýskráðar 117 bifreiðar í febrúar síðastliðnum hér á landi sem er fækkun upp á 32% frá sama mánuði 2009 þegar 172 bílar voru skráðir. Ef tekið er mið af nýskráningum í janúar og febrúar þá er um að ræða 39% fækkun milli ára.
Þannig voru samtals 250 bílar skráðir á fyrstu tveimur mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra voru þeir 407.
Þessi fækkun í nýskráningum bifreiða er í takt við þá þróun sem hefur verið hér á landi síðan við upphaf efnahagskreppunnar í febrúar árið 2008, að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Frá þeim tíma, og þá sérstaklega eftir bankahrunið, hefur bílainnflutningur verið með minnsta móti enda hefur eftirspurn eftir nýjum bifreiðum dregist verulega saman. Þetta kemur fram í tölum sem Umferðastofa hefur birt um nýskráningar bifreiða.
„Þessi mikli samdráttur á nýskráningu bifreiða er einnig vel sjáanlegur í tölum um afkomu ríkissjóðs sem birtar voru í gær. Þannig skiluðu vörugjöld af ökutækjum 76,9% minni tekjum á síðastliðnu ári en árið 2008. Þess má geta að á árinu 2008 drógust tekjur ríkissjóðs af vörugjöldum ökutækja saman um þriðjung frá árinu á undan. Ljóst er að veiking krónunnar spilar hér stórt hlutverk enda er þó nokkur fylgni milli gengisþróunar og fjölda nýskráninga bifreiða. Var krónan að meðaltali 25% veikari á árinu 2009 en 2008," segir í Morgunkorni.
Frá ársbyrjun 2008 hafa laun samkvæmt launavísitölu hækkað um tæp 11%. Á sama tíma hafa nýjar bifreiðar hækkað í verði um tæplega 42% samkvæmt vísitölumælingu Hagstofunnar. Kaupmáttur launa, mældur í bifreiðum, hefur því minnkað um tæp 22% undanfarin tvö ár á sama tíma og minna er aflögu af launum á flestum heimilum þegar búið er að greiða opinber gjöld og þjónusta lán, samkvæmt Morgunkorni.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 30. janúar 2009, Innlent 89,3% fækkun nýskráninga ökutækja
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent 77,5% samdráttur í bílainnflutningi
- Föstudagur, 26. nóvember 2010, Innlent Mun færri fyrirtæki stofnuð en áður
- Þriðjudagur, 2. nóvember 2010, Innlent Færri bifreiðar í nauðungarsölu
- Föstudagur, 2. júlí 2010, Innlent 196 bílar seldir nauðungarsölu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































