Samfylkingin hunsaði fund Evrópunefndar Búnaðarþings
Samfylkingin sá ekki ástæðu til að senda fulltrúa sína til fundar við Evrópunefnd Búnaðarþings sem hefur starfað síðustu tvo daga. Þetta kemur fram á vef Bændasamtaka Íslands.
Nefndin boðaði á sinn fund fjölda gesta og óskaði meðal annars eftir því við alla stjórnmálaflokkana sem sæti eiga á Alþingi að þeir sendu sína fulltrúa til að fjalla um Evrópusambandsumsóknina.
Við því brugðust Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Vinstri græn og Hreyfingin. Fulltrúar Samfylkingarinnar létu hins vegar ekki sjá sig og að sögn Sigurbjarts Pálssonar formanns nefndarinnar bárust engin skilaboð frá flokknum.
„Aðstoðarmaður Evrópunefndarinnar var í sambandi
við alla þessa flokka fyrir Búnaðarþing þannig að tíminn var nægur. Það
var haft samband við fulltrúa Samfylkingarinnar eins og aðra og það
stóð víst til að athuga málið en síðan hefur ekkert frá þeim heyrst,
þrátt fyrir að eftir því hafi verið leitað“ segir Sigurbjartur.
Sigurbjartur
segir að sér finnist þetta mikil vonbrigði. „Það eru auðvitað mikil
vonbrigði að Samfylkingin, annar stjórnarflokkurinn og sá sem hefur
aðild að Evrópusambandinu algjörlega á sinni stefnuskrá, skuli ekki sjá
ástæðu til að hitta Búnaðarþingsfulltrúa og ræða þetta málefni. Mér
finnst það óskaplega dapurlegt.“
Sigurbjartur segist ekki vita hvað eigi að lesa út úr þessu. „Ég vil kannski sem allra minnst gera það en ég held nú að Samfylkingunni sé það alveg eins ljóst og öðrum stjórnmálaflokkum að það stendur hérna yfir Búnaðarþing. Við höfum í gegnum árin mjög oft fengið fulltrúa til okkar frá Alþingi og stjórnmálaflokkunum til að ræða hin ýmsu mál við þingið og við höfum átt mjög góð samskipti við fólk úr öllum flokkum. Ég vil því kannski ekki ráða of mikið í þetta en ég hef þó ekki trú á því að þetta sé tilviljun eða gleymska.“
Spurður hvort að hann muni eftir því að fulltrúar stjórnmálaflokka hafi ekki svarað erindi Búnaðarþings af þessu tagi segir Sigurbjartur að hann reki ekki minni til þess. „Öll þau ár sem ég hef setið hérna og hef þurft að kalla til fólk frá Alþingi, eða í raun og veru bara hvaðan sem er, þá man ég ekki eftir því að það hafi gerst áður að fólk hafi hreinlega ekki mætt án þess þá að hafa samband og gera grein fyrir því.“
Bloggað um fréttina
-
-
Páll Vilhjálmsson Samfylkingin segir sig úr íslensku samfélagi -
Guðrún María Óskarsdóttir. Er Samfylkingin ekki stjórnmálaflokkur, með skoðun á landbúnaðarmálum ?
Innlent »
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 3. mars 2010, Innlent Kalt stríð milli bænda og Samfylkingar
- Fimmtudagur, 5. mars 2009, Innlent Bændur leggjast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu
- Miðvikudagur, 9. mars 2011, Innlent Ítreka andstöðu við ESB-aðild
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































