Meðferð Geirs í Hollandi lokið

Geir H. Haarde,
Geir H. Haarde, mbl.is/Ómar

Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, fór fyrr í vikunni til lokameðferðar og eftirlits á háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam.  Þar hefur hann verið til eftirmeðferðar á þriggja mánaða fresti frá því illkynja krabbameinsæxli var numið brott úr vélinda hans í febrúar í fyrra. 

Samkvæmt upplýsingum frá Sjálfstæðisflokknum hefur öll meðferð, sem Geir hefur þurft að fara í undanfarið ár, heppnast mjög vel og engar leyfar meinsins sýnilegar.  Meðferðinni er því lokið og hefur Geir verið endanlega útskrifaður af hollenska sjúkrahúsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert