Samningarnir geta reynst dýrari en Icesave-skuldin

Utankjörfundarkosning í Laugardalshöll stækka

Utankjörfundarkosning í Laugardalshöll Ernir Eyjólfsson

„Fyrir þá sem velktust í vafa: Það verður efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn á Íslandi á morgun.Klukkan tíu í gærmorgun var þegar komin röð fyrir utan Laugardalshöllina í Reykjavík þar sem utankjörfundaratkvæði eru greidd.“ Með þessum orðum hefst grein á norska fréttavefnum E24!

Segir í greininni að verulega hafi dregið úr líkum á snöggri afgreiðslu Icesave-samningsins og er haft eftir Gylfa Magnússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra að hætta sé á að kostnaður við samningagerðina verði hærri en Icesave-samningurinn sjálfur. Bretar og Hollendingar hafi sýnt vissa eftirgjöf undanfarna daga, þó sjá verði hvernig mál þróist. „Við getum endað með samning sem virkar betri samningur á pappírunum, en jafnhliða kostnaðinum sem hlýst af frestuninni, reynist hærri er upp er staðið,“ segir Gylfi.

Ekki sé hægt að útiloka að efnahagur landsins þoli að Icesave-deilan dragist í mörg ár. „Landið er sjálfbjarga og með örlítinn viðskiptahagnað. Ríkin hefur möguleika á að endurfjármagna þær skuldir sem falla á gjalddaga 2011, en það mun verða mun erfiðara að takast á við þessa erfiðleika án aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,“ segir Gylfi

„Þetta virðist hins vegar vera gjald sem margir Íslendingar eru tilbúnir að greiða. Og að Íslendingar fari í vörn til að berjast fyrir algjöru frelsi er hefð sem á sér djúpar rætur,“ segir greinarhöfundur, dregur fram samlíkingu með Bjarti í Sumarhúsum, og spyr Gylfa hvort hann óttist að Ísland eigi eftir að lenda í sporum Bjarts - að segja nei við öllum samningum til að vera frjáls, burtséð frá fórnarkostnaðinum. „Þjóðarandinn spilar stórt hlutverk hér og bókmenntaarfurinn hefur vissulega áhrif á hvernig fólk bregst við. En ég vona virkilega að skynsemin hafi betur, jafnvel þó fólk eigi erfitt með að kyngja henni.“

Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir að draga úr mikilvægi þess að íslenskur almenningur fái í fyrsta skipti tækifæri á að segja sína skoðun á Icesave-málinu.  En haft er eftir viðskiptaritstjóra Aftenposten, Ola Storeng, að þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardag kunni að færa valdið á ný í hendur stjórnmálamannanna sem ollu hruninu.

„Við viljum ekki borga fyrir glæpamenn,“ þrumar ellilífeyrisþeginn Jón Pétursson á klingjandi norsku eftir sex ára nám á dýralæknaháskóla í Ósló fyrir mörgum árum síðan. Strax í gær höfðu rúmlega 4.000 Íslendingar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem búist er við að útkoman verði þvert nei við samningi við Breta og Hollendinga um að greiða til baka hundruð milljaðra kr. skuld Icesave-reikninganna.

„Og þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld hafi síðustu vikuna lýst þjóðaratkvæðagreiðslunni sem marklausri, hafa vinsældir forseta landsins aukist mikið eftir að hann neitaði að skrifa undir lögin. „Ég hef aldrei staðið á fætur þegar forsetinn hefur gengið inn í herbergi, en það mun ég gera nú,“ segir Jón.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »
Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.

Ákærður fyrir að stinga mann

14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
FORD TAURUR bSES 2002
Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumardekk + vetrar sami eigandi í 9á...
 
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....